Skipulags- og byggingarnefnd - 421
Málsnúmer 2112019F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 420. fundur - 12.01.2022
Fundargerð 421. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 22. desember 2021 lögð fram til afgreiðslu á 420. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 421 Farið yfir samantekt á innsendum athugasemdum/ábendingum við auglýst deiliskipulag.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna ásamt hönnuði úr innsendum athugasemdum í samræmi við ákvörðun nefndarinnar. Bókun fundar Afgreiðsla 421. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 420. fundi sveitarstjórnar 12. janúar 2022 með níu atkvæðum. -
Skipulags- og byggingarnefnd - 421 Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á fundi þann 10. september 2021, tillögu að deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið á Sauðárkróki og var tillagan auglýst frá og með 20. október 2021 til og með 3. desember 2021 samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ábendingar og eða athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum:
Samgöngustofu
Umhverfisstofnun
Veðurstofu Íslands
Drangey- smábátafélags Skagafjarðar
Vegagerðin
Dögun rækjuvinnsla
Farið var yfir samantekt á innsendum ábendingum/athugasemdum við auglýsta deiliskipulagstillögu.
Í samræmi við 42. gr. skipulagslaga var Skipulagsstofnun send tillagan.
10.12.2021 barst Sveitarfélaginu Skagafirði bréf Skipulagsstofnunar varðandi tillöguna þar sem stofnunin gerir athugasemdir í samræmi við 42.gr skipulagslaga.
Skipulags- og byggingarnefnd felur ráðgjöfum og skipulagsfulltrúa að vinna úr framkomnum athugasemdum. Bókun fundar Afgreiðsla 421. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 420. fundi sveitarstjórnar 12. janúar 2022 með níu atkvæðum. -
Skipulags- og byggingarnefnd - 421 Farið yfir samantekt á innsendum athugasemdum/ábendingum við auglýst deiliskipulag. Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu málsins og felur skipulagsfulltrúa að fara yfir tillöguna á grundvelli innsendra athugasemda/ábendinga. Bókun fundar Afgreiðsla 421. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 420. fundi sveitarstjórnar 12. janúar 2022 með níu atkvæðum.