Landbúnaðarnefnd - 224
Málsnúmer 2112007F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 419. fundur - 15.12.2021
Fundargerð 224. fundar landbúnaðarnefndar frá 10. desember 2021 lögð fram til afgreiðslu á 419. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Landbúnaðarnefnd - 224 Steinn L. Rögnvaldsson, Hrauni, kom á fund landbúnaðarnefndar til viðræðu um málefni Fjallskilasjóðs Skefilsstaðahrepps og þá sérstaklega hönnun á endurbyggingu Selnesréttar.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að hafin verði undirbúningsvinna við hönnun og áfangaskiptingu verksins í samráði við stjórn fjallskilasjóðsins og starfsmenn veitu- og framkvæmdasviðs. Bókun fundar Afgreiðsla 224. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 224 Lögð fram umsókn um búfjárleyfi frá Alfreð G. Símonarsyni, dagsett 15. nóvember 2021, þar sem hann óskar eftir því að fá að halda 3 hross á Hofsósi.
Landbúnaðarnefnd samþykkir að veita búfjárleyfi fyrir þrjú hross. Bókun fundar Afgreiðsla 224. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 224 Framlögum úthlutað til fjallskilasjóða vegna ársins 2022, samtals 6.245 þús.kr. úr málaflokki 13210-Landbúnaðarmál. Starfsmanni landbúnaðarnefndar falið að tilkynna fjallskilanefndum um úthlutun til viðkomandi fjallskilasjóðs. Landbúnaðarnefnd áréttar að framlag til sjóðanna vegna ársins 2022, verði ekki greitt fyrr en að búið sé að skila ársreikningi fyrir árið 2021. Bókun fundar Afgreiðsla 224. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðarnefnd - 224 Lagt fram erindi dagsett 24. nóvember 2021 frá Skapta Steinbjörnssyni um kostnaðarþátttöku sveitarfélagsins við væntanlega endurbyggingu 750-800 mtr. afréttargirðingu ofan Hafsteinsstaða, á árinu 2022.
Landbúnaðarnefnd hefur þegar ráðstafað því fjármagni sem hún hefur til girðingaframkvæmda á fjárhagsáætlun ársins 2022. Hlutur sveitarfélagsins verður ekki til greiðslu fyrr en á árinu 2023 að óbreyttu. Bókun fundar Afgreiðsla 224. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðarnefnd - 224 Lagður fram til kynningar ársreikningur Fjallskilasjóðs Skefilsstaðahrepps fyrir árið 2020. Bókun fundar Afgreiðsla 224. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðarnefnd - 224 Vegna nýlega fenginnar túlkunar Umhverfisstofnunar á 31. og 32.gr. laga um náttúruvernd á þann veg að akstur utan þeirra vega eða slóða sem ekki fara inná vegaskrána um vegi í náttúru Íslands eða sem eru á skrá Vegagerðarinnar teljist utanvegaakstur skv. 1.mgr. 31.gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Lögð fram til kynningar samantekt Kára Gunnarssonar umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa á breytingu á skráningu vega/slóða fyrir vélknúin ökutæki og hvernig það snýr að landbúnaði og öðrum. Bókun fundar Afgreiðsla 224. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum.