Skipulags- og byggingarnefnd - 419
Málsnúmer 2111025F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 419. fundur - 15.12.2021
Fundargerð 419. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 30. nóvember 2021 lögð fram til afgreiðslu á 419. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 419 Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að vísa umsókn um framkvæmdaleyfi til staðfestingar sveitarstjórna Sveitarfélagins Skagafjarðar. Nefndin bókar jafnframt að hún telji aðgerðir ekki fullnægjandi með vísan til þess að Umhverfisstofnun tók lítið sem ekkert tillit til athugasemda sem sveitarfélagið gerði við tillögur stofnunarinnar að fyrirmælum um úrbætur vegna umhverfistjónsins.
Bókun fundar Afgreiðsla 419. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum. -
Skipulags- og byggingarnefnd - 419 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við Sveitarstjórn að setja skipulagslýsingu fyrir Sveinstún í auglýsingu í samræmi við 40.gr skipulagslaga. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins "Sveinstún". Samþykkt samhljóða
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 419 Magnús Oddson sækir um framkvæmdaleyfi fyrir 31 ha skógræktarsvæði í landi Keldna L146550 í Sléttuhlíð. Meðfylgjandi er uppdráttur dags. 08.08.2021 unnið af umsækjanda, gerir grein fyrir umbeðinni framkvæmd og innan framkvæmdasvæðis eru skráðar minjar sem tekið verður tillit til á framkvæmdartíma.
Fyrirliggur jákvæð umsögn minjavarðar Norðurlands vestra.
Í samræmi við 6. gr. laga nr. 106/2000 hefur sveitarfélagið Skagafjörður farið yfir tilkynningu framkvæmdaraðila, umsagnir og viðbrögð framkvæmdaraðila vegna þeirra. Niðurstaða skipulag- og byggingarnefndar er að umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir skógrækt í landi Keldna í Sléttuhlíð sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur því til við sveitarstjórn að umbeðið framkvæmdaleyfi verði veitt.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins "Keldur L146550 -Umsókn um framkvæmdaleyfi-skógrækt". Samþykkt samhljóða -
Skipulags- og byggingarnefnd - 419 Magnús Oddson sækir um samþykki fyrir byggingarreit fyrir vélaskemmu í landi Keldna L146550 í Sléttuhlíð. Meðfylgjandi gögn gera grein fyrir umbeðnum byggingarreit dags. 08.08.2021 unnið af umsækjanda. Fyrirliggur jákvæð umsögn minjavarðar Norðurlands vestra. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrirlagt. Bókun fundar Afgreiðsla 419. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum.
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 419 Skipulags- og byggingarnefnd hafnar erindinu þar sem það samræmist hvorki núgildandi aðalskipulagi né því sem nú bíður formlegrar staðfestingar og fyrirhuguð framkvæmd samræmist ekki núgildandi deiliskipulagi. Bókun fundar Afgreiðsla 419. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum.
-
Skipulags- og byggingarnefnd - 419 Í lok fundar fór Skipulags- og byggingarnefnd á fund sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og þar kynnt aðalskipulagstillaga Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2021-2035 sem samþykkt var á síðasta fundi nefndarinnar þann 22.11.2021.
Stefán Gunnar Thors og Hlynur Torfi Torfason ráðgjafar hjá VSÓ verkfræðistofu sáu um kynningu tillögunnar.
Bókun fundar Afgreiðsla 419. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 419. fundi sveitarstjórnar 15. desember 2021 með níu atkvæðum.