Fara í efni

Áhersluverkefni fyrir DMP 2020-2022

Málsnúmer 2005229

Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf Skagafjarðar - 77. fundur - 28.05.2020

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd tók fyrir tillögur að verkefnum fyrir Áfangastaðaáætlun (DMP) sem skila á inn til Ferðamálastofu fyrir 2. júní nk.
Leitað var til Félags Ferðaþjónustunnar í Skagafirði og landeigenda eftir hugmyndum að verkefnum.
Evelyn Ýr Kuhne formaður Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.

Nefndin samþykkir að setja eftirfarandi verkefni á listann:
1. Borgarsandur og Hegranesviti. Unnið er að betra aðgengi að svæðinu með bílastæði ásamt göngu- og hjólreiðastígum sem ná frá smábátahöfn á Sauðárkróki að Hegranesvita.
2. Byggðasafnið í Glaumbæ. Unnið yrði að hönnunarvinnu og deiliskipulagi fyrir breytingar á aðkomu að Glaumbæ. Bílastæði og aðstöðuhús verða bætt með öryggi ferðamanna í huga.
3. Ketubjörg. Farið verði í gerð bílastæðis og göngustíga með það að markmiði að stýra umferð ferðamanna á svæðinu og tryggja öryggi þeirra. Einnig þarf að stýra umferð ferðamanna með tilliti til verndunar svæðisins.
4. Reykjafoss. Unnið að uppbyggingu á svæðinu í samráði við landeigendur.
5. Austurdalur. Unnið að áframhaldandi uppbyggingu áfangastaðarins í samráði við landeigendur.

Öll verkefnin verða unnin í samstarfi við landeigendur og hagsmunaaðila á viðkomandi svæðum.
Nefndin felur starfsmönnum sínum að vinna nánar með listann og senda til Ferðamálastofu.