Byggðarráð Skagafjarðar - 916
Málsnúmer 2005021F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 399. fundur - 03.06.2020
Fundargerð 916. fundar byggðarráðs frá 27. maí 2020 lögð fram til afgreiðslu á 399. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 916 Rætt um mögulegar aðgerðir sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 916. fundar byggðarráðs staðfest á 399. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 916 Á 907. fundi byggðarráðs 25. mars 2020 var gerð tímabundin samþykkt vegna raskana á þjónustu stofnana sveitarfélagsins vegna COVID-19 veirunnar, þannig að greiðsluhlutdeild myndi einungis ná til þeirrar þjónustu sem raunverulega yrði nýtt, þ.e. hjá leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, frístundar- og dagdvalöl aldraðra, og innheimta þjónustunnar endurskoðuð í því ljósi. Þessi tilhögun hófst frá og með þeim tíma sem þjónusta var skert vegna COVID-19 veirunnar og gilti til loka maí 2020.
Byggðarráð samþykkir að vegna þeirrar gleðilegu staðreyndar að búið er að létta verulega á takmörkunum á samkomum vegna Covid-19 og þjónusta Sveitarfélagsins Skagafjarðar verður komin í eðlilegt horf frá og með upphafi júnímánaðar 2020, þá gildir fyrri ákvörðun ráðsins um að gjaldtaka fyrir þjónustu sveitarfélagsins verður með vanalegum hætti frá og með 1. júní 2020. Bókun fundar Afgreiðsla 916. fundar byggðarráðs staðfest á 399. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 916 Lagt fram bréf frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, dagsett 18. maí 2020 varðandi könnun á vilja sveitarstjórna aðildarsveitarfélaganna til aðkomu að viðbyggingu við verknámshús Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Byggðarráð fagnar áformum um stækkun verknámshúss FNV og tekur jákvætt í erindið.
Það er mikilvægt fyrir svæðið að Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra fái að eflast enn frekar og ítrekar byggðarráð vilja sinn að verkefninu verði flýtt sem kostur er. Bókun fundar Afgreiðsla 916. fundar byggðarráðs staðfest á 399. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 916 Byggðarráð samþykkir að taka verðtryggt lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 205 milljónir króna til 14 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til framkvæmda eignasjóðs og hitaveitu og vegna endurfjármögnunar afborgana eldri lána hjá Lánasjóðinum, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Sigfúsi Inga Sigfússyni, kt. 031175-5349, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Skagafjarðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Byggðarráð samþykkir samninginn og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 15 "Umsókn um langtímalán 2020". Samþykkt samhljóða. - .5 2005106 Umsagnarbeiðni; frumvarp til laga um um breytingu á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitnaByggðarráð Skagafjarðar - 916 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 12. maí 2020 frá nefndasviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um um breytingu á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, með síðari breytingum (átak í fráveitumálum),776. mál.
Byggðarráð fagnar frumvarpinu en framundan eru umfangsmiklar fráveituframkvæmdir hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Sveitarfélögin í landinu hafa lengi kallað eftir endurskoðun á fyrirkomulagi fráveituframkvæmda en um er að ræða nauðsynlegar en um leið mjög fjárfrekar framkvæmdir sem eðlilegt er að ríki og sveitarfélög hafa samvinnu um að koma í gott horf. Enginn vafi er á að stuðningur ríkisins mun skipta miklu máli í því mikilvæga verkefni að hraða fráveituframkvæmdum vítt og breytt um landið. Bókun fundar Afgreiðsla 916. fundar byggðarráðs staðfest á 399. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2020 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 916 Lagður fram tölvupóstur dagsettur 18. maí 2020 þar sem Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 101/2020, "Stafræn ökuskírteini". Umsagnarfrestur er til og með 25.05.2020. Bókun fundar Afgreiðsla 916. fundar byggðarráðs staðfest á 399. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2020 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 916 Lagt fram til kynningar bréf dagsett 14. maí 2020 frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga varðandi fjármál sveitarfélaga í kjölfar COVID-19. Bókun fundar Afgreiðsla 916. fundar byggðarráðs staðfest á 399. fundi sveitarstjórnar 3. júní 2020 með níu atkvæðum.