Fara í efni

Umsagnarbeiðni; þingsályktunartillaga um Alexandersflugvöll sem varaflugvöll

Málsnúmer 2002044

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 901. fundur - 12.02.2020

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 6. febrúar 2020, frá Nefndasviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um Alexandersflugvöll sem varaflugvöll fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli, 130. mál.
Byggðarráð styður málið og vill árétta að Sveitarfélagið Skagafjörður hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á uppbyggingu Alexandersflugvallar sem varaflugvallar vegna góðra lendingarskilyrða og landfræðilegrar legu flugvallarins. Það er óumdeild að lendingarskilyrði séu með því besta sem gerist á landinu og þeir dagar þar sem völlurinn lokar vegna veðurskilyrða eru fátíðir og slíkt myndi heyra til undantekinga með bættum vallarbúnaði. Jafnframt er ljóst að uppbygging vallarins myndi hafa veruleg jákvæð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi öllu.