Tekin fyrir fyrirspurn Ragnheiðar Halldórsdóttur nefndarmanni um stöðu framkvæmda í varðveislurými Byggðasafns Skagfirðinga dagsett 23.09.19 Farið var yfir stöðu framkvæmda á varðveislurými Byggðasafnsins er hún eftirfarandi: - Eldvarnahurðar munu berast í þessari viku og verður þá farið í uppsetningu á þeim. - Lagnavinna vegna brunakerfis er að hefjast en búið er að útvega allt efni og brunastöðin sjálf er einnig klár. - Búið er að malbika bílastæði fyrir framan varðveislurýmin.
Ragnheiður Halldórsdóttir (Byggðalista) óskar bókað: Fulltrúi ByggðaLista leggur til að nefndin fari í vettvangsferð að Borgarflöt 17-19 og taki út þær framkvæmdir sem þar hafa átt sér stað síðustu mánuði. Með því geta nefndarmenn og starfsmenn nefndarinnar séð svart á hvítu hver staða húsnæðisins er í raun og veru. Á sama tíma er hægt að fá nánari upplýsingar um hvað veldur þeirri miklu töf sem hefur orðið á framkvæmdum í húsnæðinu og hversu lengi verkið mun tefjast í viðbót. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 (málaflokk 05 - menningarmál) var gert ráð fyrir 5,4 mkr. í húsleigu fyrir 9 mánuði sem nemur 600.000 kr. á mánuði. Nú er kominn september og geymslurýmið enn ekki tilbúið og mun því þurfa að framlengja leigusamninginn. En það hefur verið ljóst síðan í desember 2018 að ráðast þyrfti í frekari öryggisráðstafanir í geymslurýminu vegna starfsemi bifreiðaþjónustu í sama húsnæði. Þær úrbætur sem þörf var á í húsnæðinu voru nokkrar en þó ekki það miklar að verkið ætti að taka eins langan tíma og raun ber vitni. Vettvangsferð mun leiða af sér að hægt verði að leggja raunverulegt mat á stöðu framkvæmda og hvenær verði hægt að hefja flutning munanna.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd er samþykk því að fara í vettvangsferð á helstu starfsstöðvar Byggðasafnsins og skoða starfsemi safnsins heildstætt.
Farið var yfir stöðu framkvæmda á varðveislurými Byggðasafnsins er hún eftirfarandi:
- Eldvarnahurðar munu berast í þessari viku og verður þá farið í uppsetningu á þeim.
- Lagnavinna vegna brunakerfis er að hefjast en búið er að útvega allt efni og brunastöðin sjálf er einnig klár.
- Búið er að malbika bílastæði fyrir framan varðveislurýmin.
Ragnheiður Halldórsdóttir (Byggðalista) óskar bókað:
Fulltrúi ByggðaLista leggur til að nefndin fari í vettvangsferð að Borgarflöt 17-19 og taki út þær framkvæmdir sem þar hafa átt sér stað síðustu mánuði. Með því geta nefndarmenn og starfsmenn nefndarinnar séð svart á hvítu hver staða húsnæðisins er í raun og veru. Á sama tíma er hægt að fá nánari upplýsingar um hvað veldur þeirri miklu töf sem hefur orðið á framkvæmdum í húsnæðinu og hversu lengi verkið mun tefjast í viðbót. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 (málaflokk 05 - menningarmál) var gert ráð fyrir 5,4 mkr. í húsleigu fyrir 9 mánuði sem nemur 600.000 kr. á mánuði. Nú er kominn september og geymslurýmið enn ekki tilbúið og mun því þurfa að framlengja leigusamninginn. En það hefur verið ljóst síðan í desember 2018 að ráðast þyrfti í frekari öryggisráðstafanir í geymslurýminu vegna starfsemi bifreiðaþjónustu í sama húsnæði. Þær úrbætur sem þörf var á í húsnæðinu voru nokkrar en þó ekki það miklar að verkið ætti að taka eins langan tíma og raun ber vitni. Vettvangsferð mun leiða af sér að hægt verði að leggja raunverulegt mat á stöðu framkvæmda og hvenær verði hægt að hefja flutning munanna.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd er samþykk því að fara í vettvangsferð á helstu starfsstöðvar Byggðasafnsins og skoða starfsemi safnsins heildstætt.