Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 347

Málsnúmer 1904019F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 383. fundur - 24.04.2019

Fundargerð 347. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 383. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 347 Farið var yfir vinnuferlið varðandi breytingar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 og þær breytingar sem gerðar hafa verið á tillögunni að teknu tilliti til athugasemda og ábendinga sem fram komu í kynningarferlinu. Stefán Gunnar Thors skipulagsráðgjafi hjá VSÓ ráðgjöf annaðist kynninguna fh. skipulagsnefndar.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr. 4 á dagskránni, "Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar". Samþykkt samhljóða.