Umhverfis- og samgöngunefnd - 146
Málsnúmer 1810017F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 374. fundur - 18.10.2018
Fundargerð 146. fundar umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til afgreiðslu á 374. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Ingibjörg Huld Þórðardóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Umhverfis- og samgöngunefnd - 146 Farið var yfir minnisblað frá sviðstjóra um sorphirðu í dreifbýli, áætlaðan kostnað við flokkun og sorphirðu á hverjum bæ og mögulegar gjaldskrárbreytingar samfara þeim breytingum. Bókun fundar Afgreiðsla 146. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum.
- .2 1810068 Umsögn um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 - 2023 , 172. mál.Umhverfis- og samgöngunefnd - 146 Lögð var fyrir fundinn ósk um umsögn um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáæltun fyrir árin 2019 til 2023.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi framlögum til framkvæmda í Sveitarfélaginu Skagafirði:
Skagafjarðarhafnir með 264,3 milljóna framlag (75% af kostnaði). Þar af eru 95,6 milljónir fyrir Hofsóshöfn og 168,7 milljónir vegna Sauðárkrókshafnar. Gert ráð fyrir 9,6 milljóna framlagi vegna viðhaldsdýpkun í Sauðárkrókshöfn.
Gert er ráð fyrir 21,1 milljóna framlagi vegna sjóvarna á Hofsósi vegna landbrots vestan við Suðurbraut.
Í ljósi aukinna umsvifa í Sauðárkrókshöfn þarf að fara í hönnun á stækkun hafnarinnar og mun sveitarfélagið óska eftir framlögum úr ríkissjóði þar að lútandi.
Umhverfis- og samgöngunefnd ítrekar mikilvægi þess að Sauðárkróksflugvöllur tilheyri áfrram grunnneti flugvalla en ekki er gert ráð fyrir framlögum til flugvallarins.
Nefndin harmar það að ekki sé gert ráð fyrir beinum framlögum til uppbyggingar malarvega með bundnu slitlagi í sveitarfélaginu.
Bókun fundar Afgreiðsla 146. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 146 Lagt var fram til kynningar erindi frá Umhverfisstofnun vegna ársfundar náttúruverndarnefnda árið 2018. Fundurinn verður haldinn 8. nóvember nk. á Flúðum. Bókun fundar Afgreiðsla 146. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum.
-
Umhverfis- og samgöngunefnd - 146 Lagt var fram til kynningar erindi frá umhverfisstofnun vegna styrkumsókna í framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
Bókun fundar Afgreiðsla 146. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 374. fundi sveitarstjórnar 18. október 2018 með níu atkvæðum.