Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 824

Málsnúmer 1804014F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 367. fundur - 25.04.2018

Fundargerð 824. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 367. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefánsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 824 Lagður fram ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana fyrir árið 2017. Kristján Jónasson lögg. endurkoðandi hjá KPMG hf., fór yfir og kynnti reikninginn.
    Byggðarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
    Undir þessum dagskrárlið sátu sveitarstjórnarfulltrúarnir Viggó Jónsson, Þórdís Friðbjörnsdóttir, Bjarki Tryggvason og Gunnsteinn Björnsson. Auk þeirra sat fundinn Ásta Ólöf Jónsdóttir aðalbókari sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðar nr.2 Ársreikningur 2017. Samþykkt samhljóða.