Fara í efni

Almenningar á Skaga - Þjóðlenda

Málsnúmer 1711069

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026

Lögð fram „MERKJALÝSING SVEITARFÉLAGAMÖRK Á SKAGAHEIÐI, SKAGA“

Það gert m.a. með vísan til sáttafundar vegna landamerkja á Skagaheiði sem haldinn var á Teams 23.sept 2025, þann fund sátu Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar, Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri Skagastrandar, Pétur Bergþór Arason sveitarstjóri Húnabyggðar, Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi Skagafjarðar og Ólafur Björnsson hr.

Í nefndri fundargerð sáttafundar segir m.a.

„Við meðferð þjóðlendumála á Skaga fyrir óbyggðanefnd sem lauk með sátt fyrir nefndinni 14. des. 2014, kom fram að umdeilt hefur verið hvar rétt sýslu- og sveitarfélagamörk Skagfirðinga og Húnvetninga á Skagaheiði séu. Óbyggðanefnd tók hins vegar ekki afstöðu til ágreinings um staðarmörk sveitarfélaganna.

Um er að ræða svæði á heiðinni á milli „Steins á vestara Þverfelli“ og „Þrívörðuhóls“ Ágreiningur hefur verið um hvar staðsetja skuli punkta þar á milli, einkum við Hraunsvatn.“

Fram kemur að fyrir nefndum sáttafundi lágu frammi, áreiðargerð frá 20. og 21. júlí árið 1885 undirrituð af áreiðarmönnum og

uppdráttur dags. 28.03.2025 gerður á Stoð verkfræðistofu ehf. af Birni Magnúsi Árnasyni þar sem sáttalína sé dregin með rauðri brotalínu.

Einnig kemur fram að allir fundarmenn séu sammála um að ljúka þessari deilu og að fulltrúar sveitarfélaganna, er sátu fundinn, myndu leggja fundargerðina fyrir viðkomandi sveitarstjórnir til samþykktar á framangreindri sátt, og fá umboð sveitarstjórna til að ganga formlega frá sáttinni til þinglýsingar. Jafnframt yrði Ólafi Björnssyni lögmanni falið að annast gerð merkjalýsingar fyrir umrætt svæði og fá til þess Stoð verkfræðistofu ehf.

Í framlagðri merkjalýsingu sem byggir m.a. á reglugerð nr. 160/2024 um merki fasteigna kemur fram að um sé að ræða hluta sveitarfélagsmerkja á milli Skagafjarðar (5716) og Húnabyggðar

(5613) og Sveitarfélagsins Skagastrandar (5609). Línan sem framlögð merkjalýsing nær til er lína sem liggur milli Steins á vestara Þverfelli og Þrívörðuhóls og byggir hún á nefndri sátt sáttafundar 23. sept 2025. Línan liggur um Almenninga á Skaga sem er sbr. úrskurðarorð óbyggðanefndar í máli nr. 1/2013, þjóðlenda. Hnitsettur afstöðuuppdráttur nr. S01, í verki nr. 56233101, dags. 20. mars 2026 og merkjalýsing dags. 20. mars 2026 unninn hjá Stoð verkfræðistofu ehf., gera grein fyrir legu nefndrar merkjalínu. Þá kemur fram í merkjalýsingu að með undirskrift sinni staðfesti aðilar umrædda merkjalínu og að hún sé ágreiningslaus. (Umrædd sáttalína hefur óveruleg áhrif núgildandi aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.)

Skv. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er óheimilt að skipta jörðum, löndum eða lóðum eða breyta landamerkjum og lóðamörkum nema samþykki sveitarstjórnar komi til og ný afmörkun samræmist gildandi skipulagsáætlun, sbr. einnig 6. gr. b. I. kafla A í lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna.

Fylgiskjöl merkjalýsingar, skjöl sem liggja fyrir fundinum.

1. Hnitsettur afstöðuuppdráttur nr. S01, í verki nr. 56233101, dags. 20. mars 2026 unninn hjá Stoð verkfræðistofu ehf.

Viðauki I - Fundargerð, fundargerð, sáttafundar vegna landamerkja á Skagaheiði sem haldinn var á Teams 23.sept 2025.

Viðauki 2 - Áreiðargjörð, áreiðargerð frá 20. og 21. júlí árið 1885 undirrituð af áreiðarmönnum.

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkir með níu atkvæðum sveitarfélagamörk, sbr. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eins og þeim er lýst í meðfylgjandi gögnum og að fela sveitarstjóra Skagafjarðar að undirrita framlagða merkjalýsingu og önnur gögn er varða afgreiðslu þessa máls fyrir hönd sveitarstjórnar.