Ráðning fræðslustjóra
Málsnúmer 0908008
Vakta málsnúmerFræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 50. fundur - 03.09.2009
Sjö umsóknir bárust um starf fræðslustjóra. Farið yfir umsóknir og mat Hagvangs á umsækjendum. Að teknu tilliti til fyrirliggjandi gagna mælir fræðslunefnd með því við sveitarstjórn að Herdís Á. Sæmundardóttir verði ráðin í starf fræðslustjóra hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.
Jafnframt þakkar fræðslunefnd Rúnari Vífilssyni fyrir hans störf og óskar honum velfarnaðar í nýju starfi.