Leikvellir í Skagafirði - úttekt og skoðun
Málsnúmer 0810011
Vakta málsnúmerUmhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 33. fundur - 26.09.2008
Leikvellir í Skagafirði. Lagðar fram til kynningar skýrslur um aðalskoðun leikvalla sveitarfélagsins, unnar af BSÍ á Íslandi. Skoðunin framkvæmd skv. reglugerð 942/2002. Skoðaðar voru 5 grunnskólalóðir, 7 leikskólalóðir, 10 leiksvæði og eitt leiksvæði við tjaldsvæði. Úttekt BSÍ fylgja rekstrarhandbækur fyrir hvert svæði. Helga Gunnlaugsdóttir fór yfir úttektarskýrslurnar og gerði grein fyrir þeim og helstu niðurstöðum.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 234. fundur - 07.10.2008
Lagt fram á 234. fundi sveitarstjórnar 07.10.08.