Fundargerð 153. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 232. fundi sveitarstjórnar 09.09.08 eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Til máls tóku Gunnar Bragi Sveinsson, Bjarni Jónsson, Sigurður Árnason, Páll Dagbjartsson, Bjarni Jónsson, Sigurður Árnason, Einar Einarsson, fleiri ekki.
Forseti gat þess að fyrir mistök sat fulltrúi Sjálfstæðisflokks í sveitarstjórn fundinn sem varamaður, án þess að vera til þess kjörinn. Skipulags- og byggingarnefnd mun taka þetta fyrir á næsta fundi sínum og bóka það, að þessi mistök hafi ekki haft áhrif á afgreiðslu nefndarinnar. Forseti leggur til að fundargerð skipulags- og byggingarnefndar verði afgreidd með fyrirvara um bókun nefndarinnar. Fundargerðin samþykkt með fimm atkvæðum. Páll Dagbjartsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í atkvæðagreiðslu. Jón Sigurðsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu fundargerðarinnar.
Til máls tóku Gunnar Bragi Sveinsson, Bjarni Jónsson, Sigurður Árnason, Páll Dagbjartsson, Bjarni Jónsson, Sigurður Árnason, Einar Einarsson, fleiri ekki.
Forseti gat þess að fyrir mistök sat fulltrúi Sjálfstæðisflokks í sveitarstjórn fundinn sem varamaður, án þess að vera til þess kjörinn. Skipulags- og byggingarnefnd mun taka þetta fyrir á næsta fundi sínum og bóka það, að þessi mistök hafi ekki haft áhrif á afgreiðslu nefndarinnar. Forseti leggur til að fundargerð skipulags- og byggingarnefndar verði afgreidd með fyrirvara um bókun nefndarinnar.
Fundargerðin samþykkt með fimm atkvæðum.
Páll Dagbjartsson óskar bókað að hann taki ekki þátt í atkvæðagreiðslu.
Jón Sigurðsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu fundargerðarinnar.