Byggðarráð Skagafjarðar - 421
Málsnúmer 0802002F
Vakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421
Lagt fram bréf frá Siglingastofnun varðandi fjögurra ára samgönguáætlun 2009-2012. Í bréfinu er kveðið á um að umsóknir um ríkisframlög til verkefna í hafnargerð, frumrannsókna og sjóvarna á áætlunartímabilinu skuli senda til Siglingastofnunar fyrir 15. mars nk.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421
Samband ísl. sveitarfélaga hefur gefið út bókina Sveitarstjórnarlögin ásamt skýringum og athugasemdum eftir Sesselju Árnadóttur, lögfræðing og MPA. Bókin er fyrst og fremst ætluð sveitarstjórnarmönnum og öðrum þeim sem að sveitarstjórnarmálum koma.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að sjá um að kaupa eintök fyrir sveitarstjórnarfulltrúa og Ráðhús.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421
Umsókn frá aðalstjórn Ungmennafélagsins Tindastóls um að fá að nota gagnagrunn sveitarfélagsins til að færa bókhald félagsins í.
Byggðarráð samþykkir að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að afla nánari upplýsinga um málið.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421
Hólalax hf óskar eftir að sveitarfélagið gefi út afsal fyrir fasteigninni Nátthagi 3 að Hólum í Hjaltadal þegar fyrirtækið hefur greitt upp áhvílandi lán.
Byggðaráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gefa út afsal þegar áhvílandi lán hefur verið greitt upp.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421
Lagt fram til kynningar svarbréf frá sveitarfélaginu til iðnaðarráðuneytisins varðandi mat á því hvar sé mest og brýnust þörf á tengingu við þriggja fasa rafmagn.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421
Lögð fram til kynningar tilkynning um að halda auka ársþing SSNV föstudaginn 7. mars í Skagafirði.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421
Lagt fram aðalfundarboð Landssamtaka landeigenda á Íslandi (LLÍ) fimmtudaginn 14. febrúar nk.
Byggðarráð felur landbúnaðarnefnd að sjá um að senda fulltrúa fyrir hönd sveitarfélagsins á fundinn.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 421
Lagt fram til kynningar erindi frá SSNV um samráðsfund með Launanefnd sveitarfélaga og fulltrúum sveitarstjórna á Norðurlandi vestra á Blönduósi 14. febrúar 2008. Gert er ráð fyrir að embættismenn og kjörnir fulltrúar sem mesta ábyrgð bera f.h. sveitarfélagsins á kjaramálum, launakostnaði og starfsmannamálum sæki fundinn.