-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Forráðamenn Grafaróss ehf á Hofsósi komu til fundar til viðræðu um fiskvinnslu á staðnum, byggðakvóta ofl. Véku þeir síðan af fundi.
Byggðarráð fagnar áhuga þeirra á uppbyggingu á fiskvinnslu á Hofsósi og mun leitast við að aðstoða þá eftir föngum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram erindi frá ritstjóra Feykis til sveitarstjórna sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er eftir styrk til útgáfu blaðsins á árinu 2008. Ætlunin er að fjölga starfsmönnum á ritstjórn blaðsins.
Byggðarráð samþykkir að veita styrk til verkefnisins að upphæð kr. 40.000 á mánuði út árið 2008. Fjárveiting tekin af málaflokki 21890. Jafnframt hvetur byggðarráð þau sveitarfélög sem fengu erindið sent, til að taka þátt í verkefninu einnig.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lögð fram verkefnislýsing og tilboð um ráðgjöf frá NIRÁS Konsulenterne A/S, Danmörku.
Byggðarráð tekur jákvætt í málið og vísar því til umsagnar skipulags- og bygginganefndar.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram erindi frá Jarðgerð ehf varðandi gjaldtöku fyrir móttöku á lífrænum úrgangi frá sveitarfélaginu fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008 á meðan reynslutölum er safnað.
Byggðarráð samþykkir að greiða kr. 350.000 pr. mánuð fyrir fyrstu sex mánuði árins sem síðan verði leiðrétt miðað við innvegið magn á tímabilinu og endanlega gjaldskrá.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lögð fram ályktun almenns fundar í Smábátafélaginu Skalla 15. janúar sl. "Smábátafélagið Skalli óskar eftir að sveitarstjórnir á félagssvæðinu skori á dómsmálaráðherra að beita áhrifum sínum til að björgunarþyrla verði staðsett á Akureyri."
Byggðarráð tekur undir ályktun Smábátafélagsins Skalla og Læknafélags Norðvesturlands og skorar á dómsmálaráðherra að stuðla að því að björgunarþyrla verði staðsett á Akureyri. Sveitarstjóra falið að koma þessu á framfæri.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram erindi frá Ferðaþjónustunni Steinsstöðum þar sem óskað er eftir viðræðum við byggðarráð eða fulltrúa frá sveitarfélaginu varðandi Sundlaugina á Steinsstöðum og hugsanlega uppsetningu á vatnsrennibraut við sundlaugina.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra tæknisviðs að ræða við fulltrúa fyrirtækisins.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram erindi frá húsnefnd Félagsheimilisins Höfðaborgar þar sem farið er fram á lækkun fasteignagjalda eins og undanfarin ár vegna skólastarfsemi sem fer fram í félagsheimilinu.
Byggðarráð samþykkir að félagsheimilið greiði B-fasteignaskatt þann tíma sem skólastarf fer fram í húsinu.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram erindi frá Norðurlandsskógum þar sem starfsmenn verkefnisins bjóða sveitarstjórnum að fá til sín kynningu á stöðu verkefnisins og framtíðaráformum.
Vísað til landbúnaðarnefndar, umhverfis- og samgöngunefndar og skipulags- og bygginganefndar.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram erindi frá samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um samgönguáætlun, 292. mál. Æskir nefndin svars eigi síðar en 17. febrúar nk.
Vísað til umhverfis- og samgöngunefndar.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram erindi frá Norðurvegi ehf þar sem óskað eftir umsögn sveitarfélagsins um hugmyndir að nýrri veglínu sem félagið hefur látið hanna um Kjöl, þar sem farið er frá Gullfossi í suðri, austur fyrir Bláfell, yfir Svörtutungur, um Eyvindarstaðaheiði, um Goðdalafjall og niður í Skagafjörð í norðri. Sjá kynningarefni á nordurvegur.is.
Byggðarráð samþykkir að leita álits skipulags- og bygginganefndar, landbúnaðarnefndar, Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði, Náttúrverndarsamtaka í Skagafirði, Náttúrustofu Nl. vestra, fyrirtækja í flutningastarfsemi og framleiðslu í Skagafirði.
Aðrir áhugasamir aðilar sem hafa áhuga á eða telja sig hafa hagsmuna að gæta geta sett sig í samband við sveitarstjóra.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram til kynningar erindi frá Listskreytingasjóði ríkisins þar sem sjóðurinn auglýsir eftir umsóknum um styrki til listskreytinga í opinberum byggingum árið 2008. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2008.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram til kynningar fundarboð um fund á vegum verkefnisstjórnar Sáttmála til sóknar í skólamálum í Skagafirði. Fundurinn verður haldinn í Verinu 1. febrúar nk.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram til kynningar þakkarbréf frá Kiwanishreyfingunni á Íslandi fyrir framlag sveitarfélagsins í þágu Geðhjálpar, BUGL og Forma.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram til kynningar bréf um tilgang og hlutverk Landsvirkjunar Power ehf. Tilgangur félagsins er m.a. að taka þátt í hverskonar fjárfestingum á sviði orkumála.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram til kynningar bréf frá sýslumanninum á Sauðárkróki varðandi sölu á jörðinni Brautarholti, landnr. 146017. Seljandi er Svavar Haraldur Stefánsson og kaupandi Brautarholtsbændur ehf.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lagt fram til kynningar bréf frá sýslumanninum á Sauðárkróki varðandi sölu á jörðinni Mel II, landnr. 145988. Seljandi er Jón Sigurðsson og kaupandi Melsbú ehf.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Samþykkt tímabundin ráðning í starf verkefnisstjóra á markaðs- og þróunarsvið til 31. desember 2008. Vísað til byggðarráðs frá atvinnu- og ferðamálanefnd.
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu atvinnu- og ferðamálanefndar.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 420
Lögð fram gjaldskrá félags- og tómstundanefndar vegna útleigu á Íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Vísað til byggðarráðs frá sveitarstjórn.
Byggðarráð staðfestir afgreiðslu félags- og tómstundanefndar.