Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

424. fundur 02. febrúar 2022 kl. 15:00 - 17:00 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
  • Jón Daníel Jónsson varam.
Starfsmenn
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Vallholt (232700) - Umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 2201224Vakta málsnúmer

Málefni: Vallholt (landnr. 232700), umsókn um stofnun byggingarreits

Undirritaðar, Ragna Hrund Hjartardóttir kt.211169-4789 og Stefanía Sigfúsdóttir, kt.310502-3240, þinglýstir eigendur Vallholts, landnúmer 232700, Sveitarfélaginu Skagafirði, óska eftir heimild til að stofna 37.722 m² byggingarreit á landinu, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 724409 útg. 18. jan. 2022. Afstöðuppdráttur unnin hjá Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni.
Um er að ræða byggingarreit fyrir íbúðarhús og skemmu.
Fram kemur í umsókn að fyrirhugað íbúðarhús verður ekki nær Vindheimavegi en 100 m og að hámarksnýtingarhlutfall byggingarreits verði 0,092.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt að fenginni jákvæðri umsögn minjavarðar.

2.Hamar land 203219 - Umsókn um nafnleyfi

Málsnúmer 2201231Vakta málsnúmer

Sævar Einarsson kt. 110762-4459 og Unnur Sævarsdóttir kt. 170260-7599 þinglýstir eigendur íbúðahúsalóðarinnar Hamar land, landnr. L203219 ásamt íbúðarhúsi sem á lóðinni stendur óska eftir að lóðin Hamar land, landnr. L203219 fái heitið Hamar.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

3.Hamar land 146379 - Umsókn um nafnleyfi og staðfestingu á hnitsettum landamerkjum.

Málsnúmer 2201233Vakta málsnúmer

Bragi Þór Haraldsson kt. 080353-4219, Helga Haraldsdóttir kt. 070354-3739, Baldur Haraldsson kt. 250562-4039 og Jón Bjartur Haraldsson kt. 280469-3199, þinglýstir eigendur landspildunnar (sumarbústaðalandsins) Hamar land (landnr. 146379) í Hegranesi, óska eftir staðfestingu skipulagsyfirvalda á hnitsettri afmörkun landspildunnar líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni. Þar er landspildan merkt sem Hamar 4. Einnig óska umsækjendur eftir því að nafni spildunnar Hamar land L146379 verði breytt og að spildan fái heitið Hamar 4. Einnig skrifar undir erindið Sævar Einarsson kt. 110762-4459 og lýsir yfir samþykki fyrir hönd Hamarsbúsins ehf. kt. 490606-0410.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

4.Hamar 146378 - Umsókn um nafnleyfi og landskipti

Málsnúmer 2201225Vakta málsnúmer

Sævar Einarsson kt. 110762-4459 og Unnur Sævarsdóttir kt. 170260-7599 sækja f.h. Hamarsbúsins ehf. kt. 490606-0410 sem er þinglýstur eigandi jarðarinnar Hamars (landnr. 146378) í Hegranesi, um leyfi til þess að stofna 2 landspildur, Hamar 2 og Hamar 3, úr landi jarðarinnar, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni. Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 70953001, dags. 17. janúar 2022.
Fram kemur í umsókn að landið sem um ræðir verði tekið úr landbúnaðarnotkun.
Öll hlunnindi munu áfram tilheyra jörðinni Hamar, landnr. 146378.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja landnúmerinu 146378.
Einnig er óskað eftir því að nafni jarðarinnar Hamars landnr. L146378 verði breytt og að jörðin fái heitið Hamar 1.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.


5.Innstaland L145940 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 2201245Vakta málsnúmer

Hjá embætti skipulagsfulltrúa Skagafjarðar liggur fyrir erindi Sigríðar Önnu Ellerup lögfræðings hjá Direkta lögfræðiþjónustu og ráðgjöf varðandi stofnun landspildu úr landi Innstalands L145940. Framlagður uppdráttur „Reykjastrandavegur 748 Innstaland (L145940) Vegsvæði“, dagsettur 9. apríl 2021 gerður af Vegagerðinni og Stoð ehf Verkfræðistofu gerir grein fyrir erindinu. Teikning nr. W-02. Einnig fylgir erindinu eyðublað Þjóðskrár, F-550 umsókn um skráningu nýrrar landeignar í fasteignaskrá undirritað af landeigendum, Pétri Inga Grétarssyni kt. 210275-4449 og f.h. 1001 minkur ehf. Kt. 691203-3360 af Sveini Þ. Finster Úlfarssyni kt. 310877-5499, Maria Finster Úlfarsson kt. 230280-5099.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.
Sveinn Þ. Finster Úlfarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

6.Grindur - umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 2201285Vakta málsnúmer

Málefni: Grindur L146530 - Umsókn um byggingarreit
Fyrir liggur uppdráttur í mkv. 1:200 (A1) af byggingarreit þar sem fram
kemur að fyrirhugað sé að byggja 290 m² fjárhús á jörðinni.

Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu og óskar eftir frekari gögnum.

7.Birkimelur í Varmahlíð - Deiliskipulag íbúðabyggðar

Málsnúmer 2104001Vakta málsnúmer

Ekki eru gerðar grundvallarbreytingar á skipulagstillögunni.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi, Birkimelur í Varmahlíð, og senda hana Skipulagsstofnun til yfirferðar/samþykktar.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir jafnframt þau viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og athugasemdum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn ábendingar á kynningartíma.

8.Flæðagerði - Deiliskipulag íþróttasvæðis hestamanna

Málsnúmer 2010120Vakta málsnúmer

Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á skipulagstillögunni til að koma á móts við innsendar athugasemdir. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi, Flæðagerði, og senda hana Skipulagsstofnun til yfirferðar/samþykktar. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir jafnframt þau viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og athugasemdum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn ábendingar á kynningartíma.

9.Stóra-Holt 2 - Umsókn um nafnleyfi

Málsnúmer 2202009Vakta málsnúmer

Undirritaður, Gunnar Steingrímsson kt. 260557-5139 þinglýstur eigandi jarðarinnar Stóra-Holti 2, L232286 sækir með vísan til laga nr. 22/2015 um örnefni og reglugerðar nr. 577/2017 um breytt eignarheiti jarðarinnar.
Jörðin Stóra-Holt 2 er stofnuð úr landi jarðarinnar Stóra-Holt L146904
Sótt er um að jörðin Stóra-Holt 2 fái heitið Holt.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

10.Sauðárkrókshöfn - skipulagsmál

Málsnúmer 1808083Vakta málsnúmer

Friðbjörn Ásbjörnsson fyrir hönd Fisk-Seafood ehf óskar eftir stækkun byggingarreits á lóð félagsins, að Eyrarvegi 18 (Háeyri 1) á Sauðárkróki, miðað við auglýsta tillögu að deiliskipulagi Sauðárkrókshafnar.
Óskað er eftir að í skipulaginu verði gert ráð fyrir byggingarreit í samræmi við tillögu 3b í meðfylgjandi skjali (494202).
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

11.Skagfirðingabraut 51 - Ártorg 1 - Breyting á gildandi deiliskipulagi

Málsnúmer 2001053Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Skipulagsstofnun 28.01.2022.

Fundi slitið - kl. 17:00.