Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

376. fundur 11. júní 2020 kl. 15:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
  • Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
  • Axel Kárason
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Jón Örn Berndsen skipulagsfulltrúi
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 - Endurskoðun

Málsnúmer 1812032Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd ásamt skipulagsráðgjafa Stefáni Gunnari Thors tók til umræðu skilmála og kvaðir er varða landbúnaðarsvæði, landspildur og vegna frístundalóða/frístundahúsasvæða.
Skipulagsnefnd fór yfir byggingarskilmála og fleira tengt landbúnaðarsvæðum og frístundasvæðum.

2.Engihlíð 1. L226360 - Umsókn um afmörkun á byggingarreit

Málsnúmer 2005231Vakta málsnúmer

Jóhann Guðbrandsson kt. 260857-4879, þinglýstur eigandi Engihlíðar 1, (landnr. 226360) óskar eftir leyfi fyrir byggingarreit undir frístundahús á landinu samkvæmt meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum af Stoð ehf. verkfræðistofu. Aðkoma að húsinu verður frá sameiginlegu bílastæði norðan við vatnstank Skagafjarðarveitna.
Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 779902, dags. 14. maí 2020.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

3.Engihlíð 2. L226361 - Umsókn um afmörkun á byggingarreit.

Málsnúmer 2005232Vakta málsnúmer

Barbara Wenzl kt. 250180-2179 og Ingvar Daði Jóhannsson kt. 060982-5979, þinglýstir eigendur Engihlíðar 2, (landnr. 226361) óska eftir leyfi fyrir byggingarreit undir frístundahús á landinu samkvæmt meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum af Stoð ehf. verkfræðistofu. Aðkoma að húsinu verður frá sameiginlegu bílastæði norðan við vatnstank Skagafjarðarveitna. Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 779902, dags. 14. maí 2020.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

4.Kjartansstaðir 145985 - Umsókn um staðfest landamerki og landskipti.

Málsnúmer 2005259Vakta málsnúmer

Anna Pála Þorsteinsdóttir kt. 190347-7299 og Hallgrímur Þór Ingólfsson kt. 230946-2489, þinglýstir eigendur jarðarinnar Kjartansstaða, landnúmer 145985, óska eftir staðfestingu skipulags- og byggingarnefndar á hnitsettum, ytri merkjum jarðarinnar. Meðfylgjandi er landamerkjayfirlýsing. Þá óska landeigendur eftir heimild til að skipta jörðinni Kjartansstaðir í tvo jafnstóra hluta með því að skipta 57,4 ha spildu úr landi jarðarinnar, sem „Kjartansstaðir 2“, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 714723 útg. 20. apríl 2020. Afstöðuppdráttur og forsenduskjal voru unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu. Engin fasteign er innan útskiptrar spildu.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Kjartansstöðum, landnr. 145985.
Hlunnindi vegna Húseyjakvíslar, sem og önnur hlunnindi, skiptast jafnt á milli Kjartansstaða, L145985, og útskiptrar spildu.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

5.Skagfirðingabraut 10 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2005223Vakta málsnúmer

Guðbjartur Á Ólafsson kt. 121248-2399, f.h. Guðnýjar Friðfinnsdóttur kt. 201084-2539 og Drengs Óla Þorsteinssonar kt. 270981-3999, sækir um leyfi til að endurbyggja burðarvirki auk klæðninga, auk þess að hækka geymsluhús að Skagfirðingabraut 10, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar.

6.Víðihlíð 27 - Fyrirspurn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2006043Vakta málsnúmer

Elvar Már Jóhannson leggur fram fyrirspurn til skipulags- og byggingarnefndar, um hvort leyfi fáist til að byggja upp núverandi þak á bílskúr, að Víðihlíð 27 á Sauðárkróki. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi flötu þaki verði lyft og byggt upp sem valmaþak, samkvæmt meðfylgjandi þvívíddarteikningum.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd.

7.Dalsmynni 146405 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 2006064Vakta málsnúmer

Guðmundur Björnsson kt. 160757-7019, þinglýstur eigand jarðarinnar Dalsmynnis, landnúmer 146405 óskar eftir heimild til að skipta 32,6 ha úr landi jarðarinnar, sem „Dalsmynni 1“ skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 718502 útg. 26. maí 2020. Afstöðuppdráttur var unnin hjá Stoð ehf. verkfræðistofu.
Engin fasteign er á umræddu landi. Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Dalsmynni, landnr. 146405. Engin hlunnindi fylgja landskiptum þessum.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

8.Birgðastöð Olíudreifingar við Eyrarveg 143293 Umsókn um að fjarlægja mannvirki.

Málsnúmer 2003095Vakta málsnúmer

Gunnar Kr. Sigmundsson verkefnastjóri hjá Olíudreifingu ehf. Kt. 660695-2069 leggur fram umsókn um leyfi til að fjarlægja eftirfarandi fasteignir sem staðsettar eru sem birgðastöð félagsins við Eyrarveg á Sauðárkróki: a) 622,4m3 ofanjarðar-geymir/tankur með merkinguna T00824, Fastanr. 213 1421. Mhl 01-010101 b) 161,9m3 ofanjarðar-geymir/tankur með merkinguna T0020, Fastanr. 213 1421. Mhl 07-010101 c) 358,2m3 ofanjarðar-geymir/tankur með merkinguna T0021, Fastanr. 213 1421. Mhl 04-010101 d) 537,1m3 ofanjarðar-geymir/tankur með merkinguna T0083, Fastanr. 213 1421. Mhl 02-010101 e) 466,1m3 ofanjarðar-geymir/tankur með merkinguna T0162, Fastanr. 213 1421. Mhl 03-0101 f) 16,8m2 geymsluhúsnæði, fastanr. 213 1421. Mhl 05-0101 g) 5,6m2 dæluhús fastanr. 213 1421. Mhl 06-0101 Þá er óskað eftir leyfi til að fjarlægja allar ofanjarðar eldsneytislagnir stöðvarinnar. Allt lagnakerfi frá bryggju inn að stöð verður tæmt af eldsneyti og lagnir hreinsaðar. Ekki er gert ráð fyrir að fjarlægja lagnir sem eru neðanjarðar. Öryggisgirðing umhverfis svæðið verður ekki fjarlægð að svo stöddu.

Fyrir liggur greinargerð frá Olíudreifingu þar sem fram kemur áætlun um meðhöndlun jarðvegs í kjölfar fjarlægingu tanka og kemur m.a. fram að Umhverfisstofnun mun hafa eftirlit með framkvæmdinni. Þá liggur fyrir samþykki sérfræðings og sviðsstjóra Umhverfisstofnunar dags. 8. maí 2020.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við að skipulagsfulltrúi gefi út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð 772/2012 og nær framkvæmdaleyfið til fjarlægingu geymslutanka á svæðinu. Gerður er fyrirvari um að fyrir liggi starfsleyfi til niðurrifs á tönkum sbr. reglugerð nr.550-2018.

9.Aðalgata 16B - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2005053Vakta málsnúmer

Sigurgísli E. Kolbeinsson f.h. Kaupfélags Skagfirðinga sækir um leyfi til breytinga á Aðalgötu 16b á Sauðárkróki, samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum unnum af Verkís verkfræðistofu. Breytingin fellst í að húsnæðinu verður breytt í gistiheimili í notkunarflokk 4. Gert er ráð fyrir 18 herbergjum með rými fyrir allt að 63 manns í gistingu.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi gefi út byggingarleyfi vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Varðandi bílastæði utan lóðar er umsækjanda bent á að leita þurfi samninga við landeiganda. Álfhildur Leifsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá við afgreiðslu málsins.

10.Flæðagerði - Aukið landrými

Málsnúmer 2006079Vakta málsnúmer

Forsvarsmenn Hestamannafélagsins Skagfirðings, leggja fram tillögu og ósk um aukið landrými fyrir nýtt hverfi undir hesthús á Flæðum, samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Óskað er eftir að afmörkun svæðis undir nýja hesthúsabyggð verði færð inn á tillöguuppdrátt endurskoðaðs Aðalskipulags Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið og vísar tillögu að afmörkun fyrir nýtt svæði hesthúsabyggðar til endurskoðunar aðalskipulags Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035.

11.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 105

Fundi slitið.