Fara í efni

Engihlíð 1. L226360 - Umsókn um afmörkun á byggingarreit

Málsnúmer 2005231

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 376. fundur - 11.06.2020

Jóhann Guðbrandsson kt. 260857-4879, þinglýstur eigandi Engihlíðar 1, (landnr. 226360) óskar eftir leyfi fyrir byggingarreit undir frístundahús á landinu samkvæmt meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum af Stoð ehf. verkfræðistofu. Aðkoma að húsinu verður frá sameiginlegu bílastæði norðan við vatnstank Skagafjarðarveitna.
Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 779902, dags. 14. maí 2020.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.