Fara í efni

Skipulagsnefnd

2. fundur 30. júní 2022 kl. 10:00 - 12:30 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Eyþór Fannar Sveinsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Jón Daníel Jónsson nefndarmaður og Arnar Freyr Ólafsson ráðgjafi í skipulagsmálum sátu fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Faxatorg - Flæðar - Deiliskipulag

Málsnúmer 2206310Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn Sigfúsar Inga Sigfússonar sveitarstjóra sem vísar til samþykktar í sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar dags. 25. maí 2022 um fyrirhugaða byggingu menningarhús við Faxatorg á Sauðárkróki, sem í felst endurbætur og viðbygging á núverandi Safnahúsi Skagfirðinga. Óskað er eftir upplýsingum um hvort fyrirhuguð framkvæmd samræmist gildandi deiliskipulagi.

Þar sem fyrirhuguð framkvæmd samræmist ekki gildandi deiliskipulagi, leggur skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að hafin verði vinna við endurskoðun á gildandi deiliskipulagi fyrir Flæðar á Sauðárkróki.

2.Birkimelur í Varmahlíð - Umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2206220Vakta málsnúmer

Steinn Leó Sveinsson sækir um fyrir hönd framkvæmdasviðs sveitarfélagsins Skagafjarðar um framkvæmdaleyfi vegna fyrirliggjandi framkvæmda við lengingu götunnar Birkimels í Varmahlíð. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við verkið verði lokið 15. október 2022. Í verkinu felast jarðvegsskipti vegna lengingu götunnar á um 160 metrar kafla. Uppgrafinn jarðveg á að flytja á losunarstað og jafna þar í samráði við eftirlitsmann verkkaupa. Í verkinu felst einnig gerð fráveitulagna á sama götukafla, auk lagningu annarra stofnlagna með tengingu við núverandi lagnir.
Sótt er um leyfi á grundvelli útboðsgagna.

Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði umbeðið framkvæmdaleyfi.

3.Borgarflöt 23 - Lóð skilað

Málsnúmer 2206306Vakta málsnúmer

Gylfi Ingimarsson fyrir hönd lóðarhafa G Ingimarsson ehf. óskar eftir að fá að skila inn iðnaðarlóðinni Borgarflöt 23 á Sauðárkróki sem úthlutað var á 321. fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 04.05.2018.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið.

4.Skólamannvirki Varmahlíð - Deiliskipulag

Málsnúmer 2204042Vakta málsnúmer

Lögð fram uppfærð drög að deiliskipulagi fyrir Skólamannvirkin í Varmahlíð. Svæðið afmarkast til austurs af Birkimel, til suðurs af Reykjarhólsvegi, til vesturs af afþreyingar- og ferðamannasvæði auk skógræktar og til norðurs af íbúðarhúsalóðinni Norðurbrún 1. Markmiðið með deiliskipulaginu er að styrkja svæðið í heild, samrýma og stýra framtíðaruppbyggingu og festa stefnu varðandi landnýtingu í sessi.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins ásamt hönnuði.

5.Hraun I - Hraun II - Deiliskipulag

Málsnúmer 2111012Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar athugasemdir sem bárust við auglýsta skipulagslýsingu fyrir Hraun í Fljótum. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að upplýsa hönnuði um innsendar athugasemir.

6.Sauðárkrókskirkjugarður - Deiliskipulag

Málsnúmer 2204124Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar athugasemdir sem bárust við auglýsta skipulagslýsingu fyrir Sauðárkrókskirkjugarð. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins ásamt hönnuði.

7.Sauðárkrókur - Deiliskipulag tjaldstæði - Sauðárgil

Málsnúmer 2203234Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar athugasemdir sem bárust við auglýsta skipulagslýsingu fyrir tjaldsvæðið við Sauðárgil. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins ásamt hönnuði.

8.Deiliskipulag frístundabyggðar við Reykjarhól - Varmahlíð

Málsnúmer 2105119Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar athugasemdir sem bárust við auglýsta skipulagslýsingu fyrir frístundabyggð við Reykjarhól í Varmahlíð. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins ásamt hönnuði.

9.Sveinstún

Málsnúmer 2105295Vakta málsnúmer

Farið yfir 3-D ásýndarmyndir unnar á Stoð ehf. af skipulagssvæði Sveinstúns á Sauðárkróki.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins ásamt hönnuði.

10.Sauðárkrókur - Deiliskipulag - Víðigrund

Málsnúmer 2203235Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar athugasemdir sem bárust við auglýsta skipulagslýsingu fyrir íbúabyggð við Víðigrund á Sauðárkróki. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins ásamt hönnuði.

11.Steinsstaðir - sumarbústaðarlóðir 1-8 - Skipulag

Málsnúmer 2206268Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að lóðaryfirliti og skilmálum fyrir frístundalóðirnar nr. 1-8. á Steinsstöðum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að auglýsa lausar til úthlutunar lóðirnar sem verða aðgengilegar í öðrum áfanga svæðisins, alls 4 lóðir (nr. 4, 6, 7 og 8).

12.Steinsstaðir - Íbúðarbyggð - Deiliskipulag

Málsnúmer 2206266Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að skipulagslýsingu fyrir íbúabyggð á Steinsstöðum.
Skipulagssvæðið nær yfir 3,8 ha svæði sem afmarkast af landamerkjum Steinsstaða og Reykja að norðan, Steinsstaðarskóla og félagsheimilinu Árgarði að vestan, Merkigarðsvegi (7575) að austan og hnitsettum landamerkjum að sunnan. Innan skipulagssvæðisins er íbúðarbyggð sem samanstendur af einbýlishúsum auk grænna svæða.

Skipulagsnefnd leggur til við Sveitarstjórn að setja skipulagslýsingu fyrir íbúabyggð á Steinsstöðum í auglýsingu í samræmi við 40.gr skipulagslaga 123/2010.

13.Reiðleiðir - Umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2206226Vakta málsnúmer

Jónína Stefánsdóttir sækir fyrir hönd Hestamannafélagsins Skagfirðings um framkvæmdaleyfi fyrir gerð reiðleiðar um Sauðárkrók. Umbeðin framkvæmd samræmist gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu og kallar eftir frekari gögnum.

Fundi slitið - kl. 12:30.