Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

429. fundur 17. mars 2022 kl. 14:00 - 16:00 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Sveinstún

Málsnúmer 2105295Vakta málsnúmer

Björn Magnús Árnason frá Stoð ehf. kom á fundinn og fór yfir núverandi stöðu í vinnu við deiliskipulag við Sveinstún á Sauðárkróki.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa og ráðgjafa frá Stoð að vinna tillöguna áfram í samræmi við umræðu fundarins.


2.Nestún - Deiliskipulag íbúðabyggð

Málsnúmer 2101146Vakta málsnúmer

Farið yfir samantekt á innsendum athugasemdum/ábendingum við auglýst deiliskipulag fyrir Nestún norðurhluta og óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi suðurhluta Nestúns. Ein jákvæð umsögn barst , Skipulagsstofun hyggst ekki gefa umsögn, og engar athugasemdir.
Þar sem engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma er ekki skylt sbr. 41. gr. skipulagslaga að taka tillöguna aftur til umfjöllunar í sveitarstjórn.
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna.


3.Hraun lóð (L223861) - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2201173Vakta málsnúmer

Kollgáta ehf. arkitektastofa, Valþór Brynjarsson sækir um fyrir hönd Fljótabakka ehf. sem er þinglýstur eigandi óskiptra og sameiginlegra jarða, Hraun I L146818, Hraun II L146824 og lóðarinnar Hraun lóð L223861 um leyfi til að stofna:
949,1 m² lóðir úr sameiginlegu en óskiptu landi Hrauna I L146818 og landi Hrauna II L146824, til jafns frá hvorri jörð.
Þá er sótt um að sameina lóðirnar lóðinni Hraun lóð L223861. Á þeirri lóð stendur MHL 01, 250,3 m² geymsla byggð árið 1874.
Meðfylgjandi uppdráttur gerður á Kollgátu ehf. arkitektastofu af Valþóri Brynjarssyni. Uppdráttur í verki nr.12-19-21, dagssettur 22.02.2022.
Lögbýlarétturinn fylgir áfram jörðunum Hraun I L146818, Hraun II L146824.
Engin hlunnindi fylgja landskiptum þessum.
Umbeðin landskipti samræmast gildandi aðalskipulagi.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrirlagt.

4.Hvalnes L145892. - Umsókn um skráningu staðfangs

Málsnúmer 2202285Vakta málsnúmer

Fyrir hönd Hvalnesbúsins ehf sækir Bjarni Egilsson eftir að staðfangið Hvalnes II verði skráð á nýtt 140 fm. íbúðarhús sem byggt hefur verið jörðinni Hvalnes L145892.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

5.Laugarhvammur lóð 12a(L212950) - umsókn um breytta lóðarnotkun

Málsnúmer 2203023Vakta málsnúmer

Finnur Sigurðsson eigandi lóðarinnar Laugarhvammur lóð 12a (212950), Sveitarfélaginu Skagafirði óskar eftir breyttri skráningu lóðarinnar. Lóðin er í dag skráð sumarbústaðaland, óskað er eftir því að hún verði skráð íbúðarhúsalóð.
Lóðarblað nr.S-22 í verki nr.72046 gert á Stoð ehf. verkfræðistofu dagsett 28.maí 2007 gerir grein fyrir afmörkun lóðar og byggingarreit.

Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu málsins .

6.Iðutún 17 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2112079Vakta málsnúmer

Iðutún 17 umsagnarbeiðni. Hjá byggingarfulltrúaembætti Skagafjarðar liggur fyrir erindi frá Ásbirni Óttarssyni, umsókn um leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni númer 17 við Iðutún.
Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Magnúsi Frey Gíslasyni arkitekt. Uppdrættir eru í verki 7900180, númer A-100 til og með A-105, dagsettir 01.12.2021.
Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa með vísan til 10.gr laga nr. 160/2010 um mannvirki varðandi framlagða uppdrætti.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við að byggingarfulltrúi veiti umbeðið byggingarleyfi enda fellur ætluð framkvæmd innan byggingarreits.

7.Steinsstaðir - Fyrirspurn um lóð

Málsnúmer 2203136Vakta málsnúmer

Páll Árni Guðmundsson spyrst fyrir um hvort til séu íbúðarlóðir lausar til úthlutunar á Steinsstöðum.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins og tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi eru íbúðalóðir ætlaðar við Lækjarbakka og Lækjarbrekku á Steinsstöðum. Ekki liggur fyrir deiliskipulag varðandi þetta svæði og lóðir því ekki lausar til úthlutunar. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að umrætt svæði verði deiliskipulagt.

Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið og samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að hafin verði deiliskipulagsvinna við íbúðarlóðir á Steinsstöðum.

Fundi slitið - kl. 16:00.