Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

383. fundur 10. ágúst 2020 kl. 14:00 - 16:00 í Ráðhúsi, Skagf.braut 17-21
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
  • Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Lóð 16 á Nöfum - Deiliskipulag

Málsnúmer 1807097Vakta málsnúmer

Ingimar Jóhannsson f.h. Sauðárkrókskirkjugarðs, leggur fram ósk um stækkun á svæði fyrir kirkjugarðinn á lóð 16, á Nöfum skv. meðfylgjandi gögnum. Óskað er eftir að umrædd stækkun verði færð inn á þéttbýlis/skipulagsuppdrátt sveitarfélagsins vegna endurskoðunar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035. Með slíkri stækkun væri hægt að tryggja næga grafreiti fyrir næstu 10-15 ár hið minnsta.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í að svæði fyrir kirkjugarð verði stækkað og mun koma þeim tillögum/áformum til skipulagsráðgjafa sveitarfélagsins vegna vinnu við endurskoðun á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035.

2.Skógargata 1 - Umsókn um lóðarstækkum

Málsnúmer 1701030Vakta málsnúmer

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar 12.1.2017 sótti Knútur Aadnegard kt 020951-2069 eigandi Skógargötu 1, á Sauðárkróki um að lóðin Skógargata 1, yrði stækkuð. Lóðin er í dag 575 m2. Í umsókn kom fram að fyrirhugaðar séu breytingar á eigninni og því nauðsynlegt að lóðin verði stækkuð. Afgreiðslu erindis var frestað og Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að mæla upp reitinn og skoða gildandi lóðasamninga.
Skipulags- og byggingarnefnd ræddi málið og er ákveðið að hefja vinnu við breytingu á gildandi deiliskipulagi sem mun skerpa á lóðarmörkum. Svæðið sem um ræðir afmarkast af Skógargötu að vestanverðu, Kambastíg/Kaupvangstorg að norðanverðu, Aðalgötu að austanverðu og göngustíg að sunnaverðu sem liggur með lóðunum Skógargötu 7 og Aðalgötu 13.

3.Neðri-Ás 2, land 4 - Umsókn um nafnleyfi

Málsnúmer 2006223Vakta málsnúmer

Svanbjörn Jón Garðarsson kt. 140350-2659 f.h. Magnúsar Helga Jónssonar kt. 251176-3029 eigandi landsins Neðri-Ás 2 Land 4 L223411, sækir um að heiti lóðar verði breytt og fái heitið Ásendi.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

4.Víðigrund umsókn um lóðir.

Málsnúmer 2007169Vakta málsnúmer

Jón Sigurður Ólafsson kt. 230854-3359 húsasmíðameistari f.h. óstofnaðs einkahlutafélags sækir um til skipulags- og byggingarnefndar lóðirnar Víðigrund ("10-12") og ("18-20") á Sauðárkróki. Lagðar eru fram drög/teikningar að 8 íbúða húsi á tveimur hæðum til viðmiðunar.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið, og samþykkir að hefja deiliskipulagsvinnu fyrir svæði sem afmarkast af Víðigrund og Skagfirðingabraut.

5.Lindholt - Umsókn um byggingarreit.

Málsnúmer 2006149Vakta málsnúmer

Ingi Björn Árnason kt. 310381-3579 f.h. Marbælis ehf, sækir um leyfi til að stofna byggingarreit á lóðinni Lindholt L229966 skv. meðfylgjandi gögnum, unnin af Verkfræðistofunni Stoð ehf.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

6.Gil L145930 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 2007139Vakta málsnúmer

Ómar B. Jensson kt. 190468-4299 og Vilborg Elísdóttir kt. 010171-3349, f.h. Gilsbúsins ehf kt. 540502-5790, óska eftir leyfi til að skipta út 3.05ha spildu út úr landinu Gil L145930, skv. meðfylgjandi gögnum, unnin af Einar I. Ólafssyni.Í umsókn kemur fram ósk um lausn spildunnar úr landbúnaðarnotum, og að lögbýlaréttur fylgi áfram jörðinni Gili L145930.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

7.Neðri-Ás 2, land 3 - Umsókn um stofnun lóða

Málsnúmer 2006222Vakta málsnúmer

Svanbjörn Jón Garðarsson kt. 140350-2659 sækir um að fá að stofna úr landinu Neðri-Ás 2 land 3 L223410, þrjár sumarhúsalóðir, Ásveg 1, stærð 1819 m2, Ásveg 3, stærð 2353 m2 og Ásveg 5, stærð 1996 m2 að stærð.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt

8.Holtsmúli land L173494- umsókn um nafnleyfi

Málsnúmer 2007143Vakta málsnúmer

Ingibjörg Margrét Valgeirsdóttir kt. 110558-4069 óskar eftir að heitinu Holtsmúli land verði breytt í heitið Ásmúli.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

9.Fornós 5 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2006072Vakta málsnúmer

Magnús Þórarinn Thorlacius kt. 101172-4579, óskar eftir leyfi til að breikka innkeyrslu um ca 1,7m við lóðina Fornós 5 á Sauðárkróki.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið, með fyrirvara um jákvæða umsögn sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar.

10.Sjóvarnargarður með Þverárfjallsvegi og Skarðseyri - Ósk um framkvæmdaleyfi. Endurbætur.

Málsnúmer 2007181Vakta málsnúmer

Pétur Sveinsbjörnsson f.h. Vegagerðarinnar sækir um framkvæmdaleyfi fyrir gerð sjóvarna meðfram Þverárfjallsvegi og Skarðseyri á um 450m kafla og lengingu sandfangara um 30m. Áætlað magn af grjóti og sprengdum kjarna úr námu er 13.500 m3 og upptekt og endurröðun er áætlað um 1.300 m3. Notast verður við efni úr Arnarbergsnámu, nyrst í Reykjatungu í landi Vindheima. Meðfylgjandi gögn Vegagerðarinnar gera grein fyrir framkvæmdinni.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar, að hún feli skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð 772/2012.

11.Ármúli L145983 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2007200Vakta málsnúmer

Hermann Þórisson kt. 140960-4709 þinglýstur eigandi jarðarinnar Ármúla L145983 á Langholti í Skagafirði, leggur fram í samræmi við 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skipulagslýsingu fyrir væntanlegt deiliskipulag gestahúsa auk núverandi húsa á um 2500m2 svæði innan jarðarinnar. Lýsing verkefnis dagsett 27.7.2020 er unnin af Verkfræðistofunni Stoð ehf.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar að hún samþykki fyrirliggjandi lýsingu dagsetta 27.7.2020, og feli skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun lýsinguna til umsagnar skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og kynna lýsinguna almenningi skv. sömu grein skipulagslaga. Óska skal eftir umsögnum Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra og Minjastofnunar.

12.Umsókn um deiliskipulag - Staðarhof

Málsnúmer 2007198Vakta málsnúmer

Hildur Claessen kt. 140856-5769 og Skapti Steinbjörnsson kt. 170955-4399, þinglýstir eigendur jarðarinnar Hafsteinsstaða, landnúmer 145977 og Sigurjón Rafnsson kt. 281265-5399, fyrirhugaður eigandi jarðarinnar Staðarhofs, sveitarfélaginu Skagafirði óska eftir því að láta vinna deiliskipulag þann hluta Hafsteinsstaða sem til stendur að skipta út, á eigin kostnað, skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meðfylgjandi er skipulagslýsing útg. 1.0 dags. 21.07.2020 sem unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu. Óskað er eftir samþykki skipulags- og byggingarnefndar og staðfestingu sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar á meðfylgjandi skipulagslýsingu og að hún hljóti meðferð í samræmi við 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar að hún samþykki fyrirliggjandi lýsingu dagsetta 21.7.2020, og feli skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun lýsinguna til umsagnar skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og kynna lýsinguna almenningi skv. sömu grein skipulagslaga. Óska skal eftir umsögnum Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra og Minjastofnunar.

13.Eyrartún 3 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2007078Vakta málsnúmer

Guðlaugur Skúlason kt. 250889-2919 og Sigrún Ólafsdóttir kt. 120290-2589 sækja um lóðina Eyrartún 3, á Sauðárkróki, til byggingar íbúðarhúss.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjenda.

14.Umsókn um lóð -Birkimelur 20. Varmahlíð

Málsnúmer 2007104Vakta málsnúmer

Vilhjálmur Agnarsson kt. 150585-2799 og Sirrý Sif Sigurlaugardóttir kt. 230386-2859, sækja um að fá úthlutað lóðinni Birkimelur 20, í Varmahlíð, til byggingar íbúðarhúss.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjenda

15.Umsókn um lóð - Melatún 6

Málsnúmer 2008012Vakta málsnúmer

Ragnar Helgason kt. 090888-3239 og Erla Hrund Þórarinsdóttir kt. 090689-2829 sækja um lóðina Melatún 6, á Sauðárkróki, til byggingar íbúðarhúss.
Fyrir liggur samkomulag vegna skila á lóðinni frá fyrri umsækjanda. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjenda.

Fundi slitið - kl. 16:00.