Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

326. fundur 20. ágúst 2018 kl. 09:30 - 12:05 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Jón Örn Berndsen byggingarfulltrúi
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður byggingarfulltrúa
  • Stefán Vagn Stefánsson
  • Gísli Sigurðsson
  • Bjarni Jónsson
  • Ólafur Bjarni Haraldsson
Fundargerð ritaði: Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Sauðárkrókur 218097 (Skagafjarðarveitur - hitaveita) - Umsókn um tilraunaborun

Málsnúmer 1808043Vakta málsnúmer

Fyrir liggur, hjá skipulags- og byggingarfulltrúa umsókn frá Indriða Þór Einarssyni fh. Skagafjarðarveitna, um heimild til að bora tilraunarholu fyrir kalt vatn. Tilraunarholan verður boruð á Nöfun, utan leigulóða, eins og sýnt er á meðfylgjandi gögnum. Fyrirhuguð bordýpt er 50 m. Erindið samþykkt.

2.Lóð 66 á Gránumóum - Umsókn um skiptingu lóðar

Málsnúmer 1806234Vakta málsnúmer

Með bréfi dagsettu 18. júní 2018 óskar Reynir Barðdal eftir samþykki Skipulags- og byggingarnefndar og Sveitarstjórnar um að fá að skipta lóð nr. 66 á Gránumóum upp í þrjár sjáfstæðar eignir. Reynir Barðdal mætti á fund Skipulags- og byggingarnendar þann 23. júlí sl. og gerði nánari grein fyrir erindinu. Þá var samþykkt að vinna málið áfram. Fyrir fundinum liggja tillögudrög vegna skiptingu lóðarinnar í þrjár lóðir. Samþykkt að skipta lóðinni upp í þrjár lóðir. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að gera lóðarblöð og lóðarleigusamninga í samræmi við þær breytingar sem ræddar voru á fundinum.

3.Utanverðunes 146400 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1807011Vakta málsnúmer

Umsókn Heiðbjartar Pálsdóttur var áður á dagskrá skipulags- og byggingarnefndar þann 11. júlí sl. og þá bókað:
„Heiðbjört Pálsdóttir, kt. 230751-3669 þinglýstur eigandi jarðarinnar Utanverðunes, landnúmer 146400 óskar eftir heimild Skipulags- og byggingarnefndar til að stofna 59,7 ha spildu úr landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 782601 útg. 29. júní 2018. Afstöðuppdráttur var unnin hjá Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni. Tekið er fram í umsókn að lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Utanverðunesi, landnr. 146400. Jafnframt er óskað eftir því að fyrirhuguð spilda verði tekin út landbúnaðarnotkun og fái að stofnun lokinni heitið Tjarnarnes. Afgreiðslu frestað.Skipulags- og byggingarnefnd óskar eftir að til viðbótar við umsókn verði gerð grein fyrir skiptingu hlunninda.“
Fyrir liggur yfirlýsing Heiðbjartar um að hlunnindi fylgi ekki með í þessum landskiptum og muni áfram tilheyra jörðnni Utarverðunes landnúmer 146400. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.

4.Miklihóll land 2 (221574) - Umsókn um byggingarreit.

Málsnúmer 1807139Vakta málsnúmer

Knútur Aadnegard kt. 020951-2069, þinglýstur eigandi Miklahóls land 2, (landnr. 221574) óskar eftir leyfi fyrir byggingarreit undir frístundahús á landinu líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni. Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 718902, dags. 17. júlí 2018.
Umrætt land er 21,1 ha. Á landinu er sumarhús byggt 2016 á byggingarreit sem samþykktur var 23. apríl 2014. Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið en fer fram á að unnið verið deiliskipulag af svæðinu.

5.Hóll í Sæmundarhlíð - smávirkjun - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1805139Vakta málsnúmer

Hrefna Hafsteinsdóttir og Jón Grétarsson bændur að Hóli í Sæmundarhlíð, þinglýstir eigendur Hóls í Sæmundarhlíð (landnr. 145979) óska eftir leyfi fyrir byggingu smávirkjunar líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdráttum gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni. Númer uppdrátta er S01 og S02 í verki nr. 743405, dags. 31. júlí 2018. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.










6.Helgustaðir 192697 - Umsókn um deiliskipulag.

Málsnúmer 1807012Vakta málsnúmer

Jakobína H. Hjálmarsdóttir, kt. 200859-5539, þinglýstur eignandi lóðarinnar Helgustaðir (lnr.192697) í Unadal, Skagafirði óskar eftir því að láta vinna, á sinn kostnað deiliskipulag fyrir lóðina Helgustaði.
Meðfylgjandi erindinu er skipulagslýsing útg. 1.0 dags. 28.06.2018 unnin hjá Stoð ehf. verkfræðistofu. Óskað er eftir samþykki skipulags- og byggingarnefndar og staðfestingu sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar á meðfylgjandi skipulagslýsingu og heimild til að vinna deiliskipulag. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja erindið.

7.Umsókn um lóð í Túnahverfi.

Málsnúmer 1807176Vakta málsnúmer

Með bréfi dagsettu 25. júlí sl. sækja Þórður Eyjólfsson og Ragnar Guðmundsson, fh Búhölda hsf. eftir lóðum fyrir 2-3 parhús. í Umsókn er bent á opið svæði sunnan Forsætis sem heppilegt byggingarland. Skipulags- og byggingarnefnd fagnar erindinu en fellst ekki á að lengja Forsætið. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við skiplags- og byggingarfulltrúa að skoðaðir verði nýir byggingarkostir.

8.Suðurgata 18 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1802268Vakta málsnúmer

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 16. mars sl var tekin fyrir umsók frá Friðbirni H. Jónssyni varðandi breytingar á húsinu Suðurgata 18 á Sauðárkróki. Eftirfarandi var bókað :
„Friðbjörn Helgi Jónsson kt. 120658-4099 sækir, fh. F húsa ehf. kt. 681009-1080 um heimild til lagfæringa og breytinga á einbýlishúsinu við Suðurgötu 18 á Sauðárkróki. Breytingin fellst í að gerðar verða tvær íbúðir í húsinu, íbúð á jarðhæð og önnur íbúð á annari hæð og í risi. Þá er fyrirhugaðar útlitsbreytingar á húsinu, útidyrum og gluggum breytt og húsið einagrað og klætt utan. Framlagðir uppdrættir dagsettir 22. febrúar 2018 gerðir af Þorvaldi E. Þorvaldssyni kt. 171064-5389, áritaðir af Ingvari G. Sigurðarsyni kt. 020884-3639. Skipulags- og byggingarnefnd hafnar þeim hluta erindisins er varðar að gera húsið að tveimur íbúðum, en lýsir að öðru ánægju sinni með erindið.“

Með bréfi dagsettu 11. maí sl óskar Friðbjörn eftir frekari rökstuðningi fyrir höfnun Skipulags- og byggingarnefndar á því að gera tvær íbúðir í húsinu. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að grenndarkynna erindið.

9.Öldustígur 15 - Umsókn um breytta notkun.

Málsnúmer 1805209Vakta málsnúmer

Guðni Ólafsson og Edda María Valgarðsdóttir Öldustíg 15 sækja um tímabundið leyfi til að breyta bílgeymslu á lóðinni í íbúð. Meðfylgjandi umsókn eru gögn sem gera nánari grein fyrir erindinu. Þá liggur fyrir samþykki meðeiganda í Öldustíg 15 og samþykki nágranna að Öldustíg 13. Erindið samþykkt. Breytt notkun heimiluð til 1. ágúst 2023.

10.Smáragrund 12 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 1805225Vakta málsnúmer

Jón Gunnar Vésteinsson og Pálina Ósk Ómarsdóttir sækja um heimild til að breyta bifreiðsgeymslu á lóðinni í snyrtistofu samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Erindið frestað. Samþykkt að grenndarkynna erindið.

11.Borgarmýri 1 og 1A á Sauðárkróki - fyrirspurn

Málsnúmer 1806280Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fyrirspurn frá Þorgeiri Jónssyni kt. 051055-7219 og Aðalsteini V. Júlíussyni kt. 040344-3309 um breytingu á lóðarheitum lóðanna Borgarmýri 1 og Borgarmýri 1A. Lóðirnar Borgarmýri 1 og 1A Ln: 143222 (1) og 200074(1A) eru skilgreindar sem ein bygging á tveim lóðum. Óskað er eftir að lóðarheitum verið breytt þannig að Borgarmýri 1A fái heitið Borgarmýri 1 og að Borgarmýri 1 fái götuheitið Víðimýri 1. Erindinu hafnað.

12.Sauðárkrókshöfn - skipulagsmál

Málsnúmer 1808083Vakta málsnúmer

Undir þessum lið komu fulltrúar í Umhverfis- og samgöngunefnd ásamt Indriða Þór Einarssyni sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs á fund Skipulags- og byggingarnefndar. Umræðuefnið skipulag Sauðárkrókshafnar.

Fundi slitið - kl. 12:05.