Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

406. fundur 12. maí 2021 kl. 16:15 - 18:05 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
  • Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 - Endurskoðun

Málsnúmer 1812032Vakta málsnúmer

Stefán Gunnar Thors skipulagsráðgjafi hjá VSO ráðgjöf, kynnir tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035, og fór yfir helstu atriði, sem Skipulagsstofnun hafði bent á í minnisblaði dags. 22.2.2021, að þyrftu nánari skoðunar við.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa í samvinnu við skipulagsráðgjafa að koma tillögunni til Skipulagsstofnunar til yfirferðar og samþykktar til auglýsingar í samræmi við við 30. gr. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Páfastaðir 3 - Umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 2104229Vakta málsnúmer

Þinglýstir eigendur Páfastaða, landnr. 145989 og fyrirhugaðir eigendur Páfastaða 3, landnr. 231588, óska eftir heimild til þess að stofna 625 m² byggingarreit, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti sem verður innan afmörkunar Páfastaða 3. Afstöðu¬uppdráttur var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu. Númer uppdráttar er S102 í verki nr. 778305. Byggingarreitur og mannvirki sem rís innan hans munu tilheyra Páfastöðum 3, L231588, þegar landskiptum hefur verið þinglýst. Um er að ræða byggingarreit vegna fyrirhugaðrar byggingar íbúðarhúss.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

3.Starrastaðir 146225 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 2104236Vakta málsnúmer

Þinglýstir eigendur jarðarinnar Starrastaða, landnúmer 146255, í Skagafirði, óska eftir heimild til að stofna 3.397,6 m² og 3.333,7 m² lóðir úr landi jarðarinnar, sem „Starrastaðir 2“ og „Litla-Horn“, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 757601 útg. 15. apríl 2021. Afstöðuuppdráttur unnin hjá Stoð ehf.verkfræðistofu. Starrastaðir 2 verður 3.397,6 m² að stærð og Litla-Horn verður 3.333,7 m². Óskað er eftir því að útskiptar lóðir verði leystar úr landbúnaðarnotkun og skráðar sem Íbúðarhúsalóðir (10). Kvöð um yfirferðarrétt að útskiptum lóðum er í landi Starrastaða, L146225, eins og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti. Engin hlunnindi fylgja landskiptum. Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Starrastöðum, landnr. 146225.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

4.Álfgeirsvellir land 207714 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 2101184Vakta málsnúmer

Indriði Stefánsson kt. 110148-2089, þinglýstur eigandi jarðarinnar Álfgeirsvellir land, L 207714, óskar eftir heimild til skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, til að stofna 12.79ha spildu úr landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti , unnin af Teiknistofu Norðurlands dags. 10.2.2021. Óskað er eftir að ný spilda fái heitið Álfasteinn, og spildan verði skilgreind sem íbúðarhúsalóð, og leyst úr landbúnaðarnotum. Ekkert mannvirki er á útskiptri spildu og er spildan óræktuð. Lögbýlaréttur mun áfram fylgja Álfgeirsvöllum L 207714.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

5.Dalatún 2 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2105031Vakta málsnúmer

Guðmundur Hjálmarsson kt. 150254-2489, eigandi hússins Dalatúns 2, á Sauðárkróki, óskar eftir leyfi til að breikka innkeyrslu á lóð og útbúa skjólvegg á lóðarmörkum norðan við innkeyrslu, í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir umbeðna breikkun innkeyrslu með fyrirvara um jákvæða umsögn sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar. Þá bendir nefndin á að lóðarhöfum samliggjandi lóða er heimilt að reisa girðingu eða skjólvegg á lóðarmörkum, enda leggi þeir fram hjá byggingarfulltrúa undirritað samkomulag um framkvæmdina.

6.Neðri-Ás 2 land 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1809304Vakta málsnúmer

Þórður Karl Gunnarsson f.h. þinglýsts eiganda Neðri-Ás 2 land 5, Kolbeinsdal, L223412 óskar eftir leyfi til stofnunar byggingarreits fyrir íbúðarhús skv. meðfylgjandi uppdrætti sem gerður er á Stoð ehf. verkfræðistofu, dags. 6. september 2016. Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 7159.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið að fenginni umsögn Minjavarðar.

7.Kárastígur 16 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2103239Vakta málsnúmer

Magnús Tómas Gíslason kt. 040776-5329 og Margrét Berglind Einarsdóttir kt. 180276-3199, óska eftir leyfi til að byggja við einbýlishús sem stendur á lóðinni númer 16 við Kárastíg til austurs, allt að 70 m2 viðbyggingu. Í viðbyggingu verða 2 íbúðarherbergi, snyrtiaðstaða og bílskúr, og verður útlit viðbyggingar í sama byggingarstíl og núverandi hús. Meðfylgjandi uppdrættir gera grein fyrir erindinu.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við að byggingarfulltrúi gefi út byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni, með fyrirvara um um að fyrir liggi samþykki nágranna á lóðinni Kárastígur 14.

8.Lóðamál - Reglur um úthlutun lóða

Málsnúmer 2009236Vakta málsnúmer

Lögð eru fram drög að vinnureglum skipulags- og byggingarnefndar, vegna úthlutunar á byggingarlóðum í eigu Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Nefndin vísar málinu til næsta fundar skipulags- og byggingarnefndar, til lokafrágangs.

Fundi slitið - kl. 18:05.