Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

331. fundur 26. september 2018 kl. 12:00 - 13:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Jón Örn Berndsen byggingarfulltrúi
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Sauðárkrókur - Verndarsvæði í byggð - gamli bærinn

Málsnúmer 1701129Vakta málsnúmer

Fyrir fundinum liggur tillaga að verndarsvæði í byggð, fyrir norðurhluta Gamla bæjarins á Sauðárkróki. Með þessari tillögu er markmiðið að festa verndun svæðisins í sessi með það að markmiði að framtíðaruppbygging svæðisins taki mið af þeirri menningarsögulegu arfleifð sem svæðið býr yfir.
Tillagan skiptist í sex meginkafla 1) inngang 2) lýsingu- 3) greiningu 4) varðveislumat 5) verndarflokkun og 6) verndun og uppbyggingu. í 6. kaflanum verndun og uppbygging eru greindir möguleikar til uppbyggingar og settir skilmálar fyrir verndarsvæðið.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir framlagða tillögu til íbúakynningar

2.Hofsós - Verndarsvæði í byggð

Málsnúmer 1701130Vakta málsnúmer

Farið yfir verkefnið og niðurstöður íbúafundar sem haldinn var á Hofsósi mánudaginn 17. september sl.

3.Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag

Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Kollgátu arkitektum þar sem óskað er eftir staðfestingu Skipulags- og byggingarnefndar á skipulagslýsingu vegna vinnu við fyrirhugaðrar deilskipulagsgerðar á landinu Neðri-Ás 2 land 3, landnúmer 223410 og Neðri-Ás 2 land 4, landnúmer 223411. Umsókn Kollgátu er fh. eigenda ofangreindra landskika.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að kynna skipulagslýsinguna í samræmi við ákvæði 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 og heimilar landeigendum að láta vinna deiliskipulag af landspildunum.

4.Borgarey 146150 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1808200Vakta málsnúmer

Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri sækir fh. Sveitarfélagsins Skagafjarðar kt. 550698-2349 um heimild Skipulags- og bygginganefndar og Sveitastjórnar Skagafjarðar til að skipta 4,6 ha. spildu út úr jörðinni Borgarey, landnúmer 146150. Landið sem um ræðir er nánar tilgreint og hnitasett á yfirlits- og afstöðuuppdrætti sem dagsettur er 26.10.2016. Uppdrátturinn er í verki númer 561001 nr. S03, gerður á Stoð verkfræðistofu ehf. af Birni Magnúsi Árnasyni. Öll hlunnindi fylgja landnúmerinu 146150. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.

5.Styrkbeiðni - minnismerki á Hofsósi um fyrstu vesturfarana

Málsnúmer 1804148Vakta málsnúmer

Erindi frá Byggðarráði. Byggðarráð samþykkti á fundi sínum þann 20. september sl. að vísa umsókn Óla Jóhanns Ásmundssonar arkitekts um heimild til að koma upp minnismerki á Hofsósi um fyrstu vesturfarana og staðsetja á stalli sem stendur við norðurenda göngubrúarinnar yfir Hofsá til skipulags- og byggingarnefndar til umsagnar. Skipulags-og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við erindið.

6.Helluland land B lóð 2 - Umsókn um nafnleyfi

Málsnúmer 1809128Vakta málsnúmer

Helga Óskarsdóttir kt. 310184-3659
og Guðjón Sveinn Magnússon kt. 250572-4929 eigendur landsins Helluland land B lóð 2, landnúmer 223795 óska heimildar skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar til að nefna landið Aðalból. Erindi frestað.

7.Fjallabyggð - Umsögn um breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028

Málsnúmer 1809171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Fjallabyggð er varðar breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028. Breytingin felst í að heimiluð verði frístundabyggð, svæði F15 og F16, innan hverfisverndarsvæðis á Kleifum í Ólafsfirði með þeim skilmálum sem tilgreindir eru í tillögunni. Sveitarfélaginu Skagafirði er send tillagan til umsagnar í samræmi við 2.mgr. 30.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við þessa breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028.

8.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 76

Málsnúmer 1809014FVakta málsnúmer

76. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar

Sólveig Olga Sigurðardóttir sat fundinn undir liðum 1 og 2

Fundi slitið - kl. 13:00.