Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

329. fundur 12. september 2018 kl. 13:00 - 15:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Jón Örn Berndsen byggingarfulltrúi
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður byggingarfulltrúa
  • Stefán Vagn Stefánsson
  • Gísli Sigurðsson
  • Bjarni Jónsson
  • Ólafur Bjarni Haraldsson
Fundargerð ritaði: Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá
Sólborg Una Pálsdóttir og Sólveig Olga Sigurðardóttir sátu fundinn undir liðum 1 og 2.

1.Sauðárkrókur - Verndarsvæði í byggð - gamli bærinn

Málsnúmer 1701129Vakta málsnúmer

Sólborg Una og Sólveig Olga fóru yfir stöðu verkefnisins verndarsvæði í byggð gamli bærinn á Sauðárkróki fóru yfir drög að verndarskilmálun.

2.Hofsós - Verndarsvæði í byggð

Málsnúmer 1701130Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu verkefnisins og íbúafund sem haldinn verður á Hofsósi nk mánudag 17 september kl 17.

3.Suðurbraut 146673 - Umsókn um lóðarstækkun.

Málsnúmer 1804127Vakta málsnúmer

Valdís B. Hálfdánardóttir kt. 270981-4889 og Rúnar Þ. Númason kt. 130483-5349 sækja, fyrir hönd Pardus ehf., kt. 450269-5579, um heimild til þess að stækka lóðina Suðurbraut 146673 og stofna á lóðinni byggingarreit, skv. meðfylgjandi uppdrætti, sem gerður er á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni, dags. 20. ágúst 2018. Númer uppdráttar er S-101 í verki nr. 7599-01. Í umsókn kemur fram að á byggingarreitnum er fyrirhugað að reisa viðbyggingu við núverandi verkstæði sem hefur fasteignanúmer F2143691. Lóðin Suðurbraut 146673 er fjöleignahúsalóð.Meðfylgjandi umsókn er yfirlýsing Jóns Helga Pálssonar kt. 050565-4169 og Þorgils Heiðars Pálssonar kt. 110372-3029 fh. Grafaróss ehf, kt. 490606-0760, sem er eigandi fasteignar á lóðinni með fasteignanúmerið F2143692. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.

4.Suðurgata 6 - Lóðarmál

Málsnúmer 1806262Vakta málsnúmer

Fyrir liggur lóðarblað og drög að lóðarleigusamningi vegna lóðarinnar Suðurgata 6. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ganga frá málinu.

5.Herjólfsstaðir (145886) - Beiðni um breytta húsaskráningu.

Málsnúmer 1808179Vakta málsnúmer

Fyrir liggur beiðni frá þinglýstum eiganda Herjólfsstaða, landnúmer 145886, Jóhönnu Stefánsdóttur kt. 290658-4549 um að skráningu frístundahúss á jörðinni verði breytt. Húsið verði skráð íbúðarhús. Erindið samþykkt.

6.Vélaval Varmahlíð - Umsókn um lóð

Málsnúmer 1808167Vakta málsnúmer

Ragnar Magnússon framkvæmdastjóri sækir, fyrir hönd Vélaval ehf. kt. 700112-1520 um lóðarstækkun lóðarinnar Varmahlíð/Norðl.vegur (178669) eða nýja lóð sunnan lóðarinnar. Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið og felur byggingarfulltrúa að ræða við umsækjanda.

7.Iðutún 12 - Umsókn umstækkun lóðar og heimheyrslu

Málsnúmer 1809051Vakta málsnúmer

Pétur Örn Jóhannsson kt.020792-4189 sækir um leyfi til að breyta heimkeyrslu að lóðinni Iðutún 12 og breyta lóðarmörkum að norðanverðu. Framlagður afstöðuuppdráttur gerður á Stoð ehf af Magnúsi Ingvarssyni gerir grein fyrir erindinu. Uppdrátturinn er dagsettur 6. september 2018, númer A-099 í verki nr. 741501.Erindið samþykkt.

8.Hof land 195048 - Umsókn um nafnleyfi

Málsnúmer 1808158Vakta málsnúmer

Jón Ásbergsson kt. 310550-2489 eigandi frístundarhúss á landinu Hof land landnúmer 195048, óskar eftir heimild skipulags-og byggingarnefndar og sveitarstjórnar til að nefna frístundahúsið og landið sem húsið stendur á Efra-Hof. Erindið samþykkt.

9.Formlegt erindi um stækkun á húsnæði landvinnslu Fisk Seafood

Málsnúmer 1808093Vakta málsnúmer

Á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar þann 4. september sl. var tekið fyrir erindi FISK Seafood hf. um stækkun á húsnæði landvinnslu fyrirtækisins. Í erindinu er m.a gert ráð fyrir viðbyggingu við núverandi húsnæði sem nær lengra fram á hafnarkantinn en núverandi byggingar. Á fundinum lagði Umhverfis- og samgöngunefndin til við Skipulags- og byggingarnefnd og sveitarstjórn að hafin verði deiliskipulagsvinna við hafnarsvæðið. Skipulags- og byggingarnefnd lýsir sig reiðubúna til að koma að deiliskipulagsvinnu á hafnarsvæðinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi verður tengiliður nefndarinnar við þessa vinnu.

10.Skipulagsdagurinn 2018

Málsnúmer 1808180Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð frá Skipulagsstofnun varðandi Skipulagsdag 20. september nk.

11.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 75

Málsnúmer 1809003FVakta málsnúmer

Fundargerð 75. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:00.