Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

321. fundur 04. maí 2018 kl. 09:00 - 10:40 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Viggó Jónsson formaður
  • Ásmundur Jósef Pálmason varaform.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir ritari
  • Guðni Kristjánsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Jón Örn Berndsen byggingarfulltrúi
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Geldingaholt II - Umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 1804039Vakta málsnúmer

Sigurjón Tobíasson kt 081244-5969, þinglýstur eigandi Geldingaholts II, landnr. 146030, óskar eftir heimild til að stofna byggingarreit í landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti, sem gerður er á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni, dags. 5. apríl 2018. Númer uppdráttar er S-101 í verki nr. 7162-23. Umsögn Minjavarðar Norðurlands vestra er fyrirliggjandi.Erindið samþykkt.

2.Ríp 2 (146396) - Umsókn um byggingarreit.

Málsnúmer 1803050Vakta málsnúmer

Birgir Þórðarson kt 070660-5479, þinglýstur eigandi Rípur II, (landnr. 146396) sækir um leyfi til að stofna byggingarreit á jörðinni. Meðfylgjandi er uppdráttur sem gerður er á teiknistofunni BK hönnun ehf. af Birki Kúld kt. 010884-3499. Uppdrátturinn er í verki 16-01, dagsettur 25.05.2016, númer 101 og 102. Umsögn Minjavarðar Norðurlands vestra er fyrirliggjandi. Erindið samþykkt.

3.Bústaðir II (193157) - Umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 1803190Vakta málsnúmer

Steindór Búi Sigurbergsson kt. 210383-5739 þinglýstur eigandi Bústaða II, (landnr. 193157) óskar eftir heimild til að stofna byggingarreit undir aðstöðuhús á landi Bústaða I og II, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni. Númer uppdráttar er S-04 í verki nr. 75181, dags. 14. mars 2018.Fyrirliggjandi er samþykki meðeiganda og umsögn Minjavarðar Norðurlands vestra er fyrirliggjandi. Erindið samþykkt.

4.Víðimelur Suðurtún - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1802087Vakta málsnúmer

Steinunn Ámundadóttir kt. 160550-3099, þinglýstur eigandi Víðimels, Suðurtúns í Skagafirði (landnr. 226482) óskar eftir heimild skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar til að skipta lóð úr ofangreindu landi, skv. meðfylgjandi hnitsettum afstöðuuppdrætti, gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni. Númer uppdráttar er S-101 í verki 7806-05, dags. 5. febrúar 2018. Stærð lóðar er 7.380 m2. Óskað er eftir að lóðin fái heitið Suðurtún 1. Einnig er sótt um breytinu á landnotkun. Á lóðinni er fyrirhugað að setja upp sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir umbeðin landskipti. Breytt landnotkun kallar á breytingu á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags. Skipulagsnefnd er tilbúin til að hefja vinnu við breytingu á aðalskipulagi vegna þessa erindis.

5.Laugarhvammur (146196) - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1803189Vakta málsnúmer

Friðrik Rúnar Friðriksson kt. 141156-5009 þinglýstur eigandi jarðarinnar Laugarhvamms (1461969 óskar eftir heimild til að stofna 833 ferm. landspildu úr landi jarðarinnar. Óskað er eftir að landspildan fái heitið Laugarhvammur lóð 10b og að landspildan verði leyst úr landbúnaðarnotum Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur S01 dagsettur 12. mars 2018 er unnin hjá Stoð ehf. af Birni Magnúsi Árnasyni. Erindið samþykkt.

6.Laugarhvammur (146196) - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1803234Vakta málsnúmer

Friðrik Rúnar Friðriksson kt. 141156-5009 þinglýstur eigandi jarðarinnar Laugarhvamms (1461969 óskar eftir heimild til að stofna 0,84 ha. landspildu úr landi jarðarinnar. Óskað er eftir að landspildan fái heitið Laugarhvammur land 15. Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur S04a dagsettur 15. mars 2018 er unnin hjá Stoð ehf. af Eyjólfi Þór Þórarinssyni. Á spildunni er borhola fyrir heitt vatn og um spilduna liggur Merkigarðsvegur (7575) þjóðvegur í þéttbýli. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

7.Miðdalur 146207 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1804228Vakta málsnúmer

Svana Ósk Rúnarsdóttir kt.110883-4989 og Ástþór Örn Árnason kt.060784-3459, þinglýstir eigendur jarðarinnar Miðdalur, landnúmer 146207 óska eftir heimild til að stofna 7.186 m² spildu úr landi jarðarinnar, sem Miðdalur 1, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 770602 útg. 30. apríl 2018. Afstöðuppdráttur var unnin hjá Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni. Innan merkja spildunnar eru matshlutar 02 og 09. Matshluti 02 er 125,6 m² einbýlishús með matsnúmer 214-1320 og matshluti 09 er 162,6 m² íbúð með matsnúmer 231-2707 og 31,6 m² bílskúr með matsnúmer 231-2708. Þessir matshlutar skulu fylgja stofnaðri spildu. Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Miðdal, landnr. 146207. Jafnframt er óskað eftir því að stofnuð spilda skuli tekin úr landbúnaðarnotkun. Erindið samþykkt.

8.Borgarflöt 23 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 1803214Vakta málsnúmer

Gylfi Ingimarsson kt. 140370-5929 sækir fh. G Ingimarsson ehf kt. 690416-2980 um lóðina nr 23 við Borgarflöt fyrir atvinnuhúsnæði. Samþykkt.

9.Fjallabyggð-Umsókn breytingar á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028

Málsnúmer 1804162Vakta málsnúmer

Með tölvubréfi 23. apríl sl óskar Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi Fjallabyggðar eftir umsögn, athugasemdum eða ábendingum Sveitarfélagsins Skagafjarðar við meðfylgjandi skipulagstillögu vegna breytinga á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028. Er það gert í samræmi við 2.mgr. 30.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að landnotkunarflokki á malarvellinum á Siglufirði er breytt úr miðsvæði í íbúðarsvæði vegna fyrirhugaðrar íbúðabyggðar á svæðinu. Skipulags- og byggingarnefnd gerir engar athugasemdir við fyrirhugaða skipulagsbreytingu.

10.Hólavegur16 - Fyrirspurn um breytingar á útliti og innra skipul.

Málsnúmer 1803213Vakta málsnúmer

Eyþór Fannar Sveinsson kt 231087-2579 og Sveinn Árnason kt 230359-7929 leggja fram fyrirspurn um hvort heimild fengist til að
a) Skipta íbúð á efri hæð Hólaveg 16 úr einni íbúð í tvær. Um er að ræða hæð sem er 224 fermetrar að stærð sem myndi þá skiptast í 135 fermetra og 89 fermetra. Útfærður yrði stigi utan á húsið upp á svalir sem notaður yrði sem inngangur í stærri íbúðina. Núverandi inngangur yrði notaður óbreyttur fyrir minni íbúðinna.
b) Í neðri hæð yrði að hluta til útbúin hársnyrtistofa og í hinum hlutanum yrði skipulagt svæði fyrir aðra tengda starfsemi eða rými fyrir verslun.
c) einangra og klæða húsið að utan ásamt því að skipta um glugga og hurðir á báðum hæðum. Meðfylgjandi frumgögn gera grein fyrir hugmyndum fyrirspyrjenda.
Skipulags- og byggingarnefnd fellst á áform umsækjanda. Bendir á að skila þarf aðal- og séruppdráttum til byggingarfulltrúa.

11.Víðines 1 og 2 lóð 146501- Umsókn um staðfestingu á afmörkun lóðar

Málsnúmer 1804090Vakta málsnúmer

Ingibjörg Sigurðardóttir kt. 160673-3219, Sólberg Logi Sigurbergsson kt 051177-4879 eigendur Víðines I og Sigurður Guðmundsson kt 020547-4059 eigandi Víðines 2 óska eftir staðfestingnu Skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar á afmörkum lóðarinnar Víðines I og 2 eins og hún er sýnd á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti sem gerður er hjá Stoð ehf af Braga Þór Haraldssyni. Númer uppdráttar er S01 dagsettur 15.mars 2018. Samþykkt.

12.Ysti-Mór lóð 146831 (Flókalundur) - Umsókn um nafnleyfi

Málsnúmer 1804119Vakta málsnúmer

Guðrún Elín Björnsdóttir kt. 290861-2179 og Guðmundur Sigurbjörnsson kt 180263-3739 lóðarhafar lóðarinnar Ysti-Mór lóð landnúmer 146831 óska heimildar skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar til að nefna lóðina Flókalund. Fyrir liggur samþykki Stefáns Loga Haraldssonar fh. Ysta-Mós ehf. sem er landeigandi. Samþykkt.

13.Suðurbraut 9 - Fyrirspurn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 1803020Vakta málsnúmer

Gissur E. Pálsson deildarstjóri framkvæmdadeildar N1 ítrekar með bréfi dagsettu 18. apríl sl. umsókn um heimild til að flytja afgreiðsludælur sem eru á lóðinni Suðurbraut 9 í Hofsósi. Óskað er eftir að fá að staðsetja afgreiðsludælurnar á opnu svæði við gatnamót Túngötu og Suðurbrautar. Meðfylgjandi afstöðumynd dagsett 28.02.2018 gerð af Kristjáni G. Leifssyni kt. 230873-5699 gerir grein fyrir erindinu. Skipulags- og byggingarnefnd lýsir sig fúsa til viðræðna við umsækjanda um málið.

14.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 65

Málsnúmer 1803017FVakta málsnúmer

Fundargerð 65. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

15.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 66

Málsnúmer 1803021FVakta málsnúmer

Fundargerð 66. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

16.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 67

Málsnúmer 1804003FVakta málsnúmer

Fundargerð 67. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:40.