Fara í efni

Nestún Sauðárkróki, parhúsalóðir til úthlutunar

24.01.2024
Yfirlitsmynd af Nestúni 16-24.

Nestún 16 og 22 – parhúsalóðir

Skipulagsnefnd Skagafjarðar auglýsir til úthlutunar parhúsalóðir nr. 16 og 22 við Nestún í samræmi við reglur sveitarfélagsins um úthlutun byggingarlóða, dags. 14. september 2022. Um er að ræða 1.150,8 m² parhúsalóðir með hámarksbyggingarmagn 402 m². Sótt er um lóðir hér á vef Skagafjarðar, einnig er hægt er að skoða og sækja um lóðirnar á kortasjá Skagafjarðar, með því að haka við „Lausar lóðir“ undir „Fasteignir“ í valglugganum.

Um úthlutun lóðanna gilda reglur um úthlutun byggingarlóða í Skagafirði.

Lóðirnar eru auglýstar frá og með 24. janúar 2024 til og með 9. febrúar 2024.

Umsóknir skulu vera í samræmi við úthlutunarreglur Skagafjarðar og frestur lóðarhafa til framkvæmda er skv. 10. gr. úthlutunarreglna. Hægt er að nálgast úthlutunarreglur með því að smella hér.

Einungis er hægt að sækja um eina lóð og aðra tilgreinda lóð til vara. Dregið verður úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um lóð.

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar