Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

141. fundur 05. mars 2008 kl. 13:15 í Ráðhúsinu
Fundargerð ritaði: Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Valadalur - Umsókn um byggingarleyfi, Einbýli.

Málsnúmer 0804034Vakta málsnúmer

 Valadalur -  umsókn um byggingarleyfi. Málið áður á dagskrá nefndarinnar 6. desember sl., þá bókað. "Valadalur - Umsókn um byggingarleyfi.  Eiríkur Kristján Gissurarson kt.  060653-5859 og Stefán Gissurarson kt. 030157-2659 þinglýstir eigendur jarðarinnar Valadals á Skörðum landnr. 146074, sækja með bréfi mótteknu hjá byggingarfulltrúa 28. nóvember sl. um leyfi til að byggja íbúðarhús og geymsluhús á jörðinni. Framlagður yfirlits- og afstöðuuppdráttur dagsettur 29.11.07, gerður af Stoð ehf. verkfræðistofu, aðaluppdrættir gerðir af Reyni Sæmundssyni arkitekt. Einnig meðfylgjandi umsögn Fornleifaverndar ríkisins, Þórs Hjaltalín, sem dagsett er 22. nóvember 2007. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að óska eftir umsögn vegagerðarinnar varðandi vegtengingu að húsinu." Í dag liggur fyrir samþykki Vegagerðarinnar með fyrirvara um að tenging vegarins inn á þjóðveginn verði færð þegar brúarvegrið verði sett upp, staðlar og verklag gagnvart frágangi á vegriðum eru með þeim hætti að tengingin verður að færast í vestur um a.m.k. 90 metra frá brú á Valadalsá. Samþykkt að óska eftir meðmælum Skipulagsstofnunar með veitingu byggingarleyfis sbr. 3. tl. Bráðabirgðaákvæða skipulags- og byggingarlaga.

2.Ysti-Mór - umsókn um stofnun lóðar.

Málsnúmer 0801086Vakta málsnúmer

Ysti-Mór í Fljótum lóð ? umsókn um byggingarleyfi. Linda Nína Haraldsdóttir kt. 070654-3859, framkvæmdastjóri Ysta-Mós ehf. kt. 540183-0909,  sækir um með bréfi dagsettu 1. mars sl., um leyfi til að byggja frístundahús á lóð með landnúmerið 215833, í landi Ysta-Mós. Framlagðir uppdrættir gerðir af Bjarna Reykjalín arkitekt og byggingartæknifræðingi, og eru þeir dagsettir 24. febrúar 2008. Fyrir liggur jákvæð umsögn Skipulagsstofnunar dagsett 28. febrúar 2008. Erindið samþykkt með fyrirvara um jákvæða umsögn Minjavarðar Norðurlands vestra.

3.Stóra-Seyla lóð (212964) - Umsókn um nafnleyfi

Málsnúmer 0806062Vakta málsnúmer

Stóra-Seyla lóð ? umsókn um byggingarleyfi. Friðrik Rúnar Friðriksson kt. 141156-5009, fyrir hönd Birnu Halldórsdóttur kt. 031147-3369, sækir með bréfi dagsettu 3. mars sl. um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi á lóð í landi Stóru-Seylu, landnúmer  212964, Skagafirði. Framlagðir uppdrættir gerðir af Benedikt Björnssyni arkitekt, og eru þeir dagsettir 18. september 2007 og 8. janúar 2008. Fyrir liggja jákvæðar umsagnir Minjavarðar Norðurlands vestra dagsett 30. júlí 2007, umsögn Vegagerðarinnar varðandi vegtengingu dagsett 12. október 2007 og Skipulagsstofnunar dagsett 8. nóvember 2007. Erindið samþykkt.

4.Miðgarður menningarhús

Málsnúmer 0803087Vakta málsnúmer

Miðgarður ? umsókn um byggingarleyfi. Jón Örn Berndsen, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, fyrir hönd eigenda félagsheimilisins Miðgarðs sækir með bréfi dagsettu 3. mars sl. um byggingarleyfi fyrir breytingum á áðursamþykktum aðaluppdráttum. Breytingar felast í byggingu við anddyri og breytingar í forsal. Framlagðir, breyttir aðaluppdrættir eru gerðir af T.ark Teiknistofunni ehf. Brautarholti 6, Reykjavík, mótteknir hjá byggingarfulltrúa 18. febrúar. Erindið samþykkt. Jón Örn vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.

5.Flæðagerði 11 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 0807018Vakta málsnúmer

 Flæðagerði 11 ? umsókn um byggingarleyfi. Einar Sigurjónsson kt. 3006533409, sækir með bréfi dagsettu 12. febrúar sl. um leyfi til þess að byggja við hesthús sem stendur á  lóðinni nr. 11 við Flæðagerði á Sauðárkróki. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af Teiknistofunni Húsagerð og Skipulag, Suðurlandsbraut 16, Gunnari Einarssyni kt. 020550-2369 og eru þeir dagsettir 12. febrúar 2008. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að leita umsagna hjá hlutaðeigandi hagsmunaaðilum á svæðinu.

6.Flæðagerði 9

Málsnúmer 0804104Vakta málsnúmer

Flæðagerði 9 ? fyrirspurn.  Pétur Ingi Grétarsson kt. 210275-4449 leggur fram fyrirspurn dagsetta 12. febrúar sl. þar sem hann óskar eftir að fá að byggja við hesthús sem stendur á  lóðinni nr. 9 við Flæðagerði á Sauðárkróki. Erindinu fylgja ekki uppdrættir, en vísað er til uppdrátta sem lagðir hafa verið fram með umsókn fyrir Flæðagerði 11. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að leita umsagna hjá hlutaðeigandi hagsmunaaðilum á svæðinu.

7.Flæðagerði 7 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 0807017Vakta málsnúmer

Flæðagerði 7 ? fyrirspurn.  Hörður Þórarinsson kt 140855-5109 leggur fram fyrirspurn dagsetta 12. febrúar sl. þar sem hann óskar eftir að fá að byggja við hesthús sem stendur á  lóðinni nr. 7 við Flæðagerði á Sauðárkróki. Erindinu fylgja ekki uppdrættir, en vísað er til uppdrátta sem lagðir hafa verið fram með umsókn fyrir Flæðagerði 11. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að leita umsagna hjá hlutaðeigandi hagsmunaaðilum á svæðinu

Fundi slitið.