Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

398. fundur 10. febrúar 2021 kl. 16:00 - 17:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
  • Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Knarrarstígur 1 Sauðárkróki - lóð

Málsnúmer 2003209Vakta málsnúmer

Skipulagsfulltrúi leggur fram gögn sem skýra afmörkun íbúðarhúsalóðarinnar Knarrarstígur 1 , L143551, á Sauðárkróki. Gögn unnin af Stoð ehf verkfræðistofu. Lóðin hefur verið mæld upp með nákvæmum gps tækjum, og er niðurstaða mælinga, að stærð lóðar er 1122,5 m2. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir afmörkun lóðarinnar og felur skipulagsfulltrúa að ganga frá nýjum lóðarleigusamningi.

2.Kleifatún 9-11, - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2101223Vakta málsnúmer

Skúli Hermann Bragason kt. 280272-3619, sækir um byggingarlóðina Kleifatún 9-11 á Sauðárkróki, til byggingar parhúss á lóðinni.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjanda.

3.Gil 6 (230527) - Umsókn um breytt eignarheiti.

Málsnúmer 2102028Vakta málsnúmer

Vilborg Elísdóttir kt. 010171-3349 og Ómar Björn Jensson kt. 190468-4299 eigendur íbúðarhúsalóðarinnar Gil 6, L230527 sækja um leyfi skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar til að nefna lóðina ásamt íbúðarhúsi sem á lóðinni stendur Gilseyri. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

4.Staðarhof - Umsókn um stofnun lóða

Málsnúmer 2102006Vakta málsnúmer

Sigurjón Rúnar Rafnsson kt.281265-5399, þinglýstur eigandi jarðarinnar Staðarhofs, landnúmer 230392 óskar hér með eftir heimild til að stofna 6.944 m² spildu sem „Staðarhof 2“ og 1.480 m² spildu sem „Staðarhof 3“, úr landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 732606 útg. 27. jan. 2021, unninn af Stoð ehf. verkfræðistofu. Innan merkja Staðarhofs 2 verður hesthús og vélageymsla. Óskað er eftir því að Staðarhof 3 verði skráð sem frístundalóð. Umferðarréttur að útskiptum spildum er í landi Staðarhofs, L230392.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

5.Gröf L146532 - Umsókn um staðfestingu á landamerkjum

Málsnúmer 2102008Vakta málsnúmer

Gunnlaugur Oddsson kt.150562-3259 og Helga Freysdóttir kt.210363-2119, þinglýstir eigendur jarðarinnar Gröf, landnúmer 146532 óska eftir staðfestingu á hnitsettum landamerkjum jarðarinnar, vestan Siglufjarðarvegar (76), á móti Grafargerði og Miðhúsum skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S-01 í verki 756501 útg. 13. jan. 2021. Þá óska landeigendur eftir heimild til að stofna 131 ha (1.314.984 m²) spildu úr landi jarðarinnar, sem „Gröf 3“, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 756501 útg. 13. jan. 2021. Afstöðuppdráttur var unnin hjá Stoð ehf. verkfræðistofu. Óskað er eftir því að útskipt spilda haldi skilgreiningu sem jörð. Innan merkja fyrirhugaðrar spildu eru matshlutar 10 og 12. Matshluti 10 er 657,3 m² minkahús byggt árið 1985 og matshluti 12 er 894,4 m² minkahús byggt árið 1989. Þessi mannvirki skulu fylgja útskiptri spildu. Ræktað land sem fylgir landskiptum nemur um 12,3 ha og er sýnt á afstöðuuppdrætti. Engin hlunnindi fylgja landskiptum. Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Gröf, landnr. 146532. Fyrir liggur landamerkjalýsing með undirritun eigenda Grafargerðis L146527, Miðhúsa L146567 og Grafar L146532 um að landamerki og afmörkun Grafar L146532 séu ágreiningslaus. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

6.Samráð; Drög að frumvarpi til laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana

Málsnúmer 2102040Vakta málsnúmer

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs í samráðsgátt mál nr. 30/2021, drög að frumvarpi til laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Umsagnarfrestur er til og með 23.02.2021.
Skipulags- og byggingarnefnd fagnar breytingum sem geta orðið til einföldunar og styttingar á verkferlum vegna umhverfismats áætlana og umhverfismati framkvæmda.

7.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 114

Málsnúmer 2102004FVakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:00.