Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

311. fundur 21. nóvember 2017 kl. 13:15 - 14:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Viggó Jónsson formaður
  • Ásmundur Jósef Pálmason varaform.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir ritari
  • Guðni Kristjánsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Jón Örn Berndsen byggingarfulltrúi
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Iðutún 6 Sauðárkróki - afturköllun lóðarúthlutunar

Málsnúmer 1711139Vakta málsnúmer

Lagt er fyrir samkomulag um skil á lóðinni Iðutún 6 á Sauðárkróki. Skipulags- og byggingarnefnd staðfestir framangreint samkomulag. Lóðin Iðutún 6 er laus til umsóknar.

2.Fellstún 18 - Afturköllun lóðarúthlutunar

Málsnúmer 1710030Vakta málsnúmer

Lagt er fyrir samkomulag um riftun á lóðarleigusamningi milli annars vegar Sigurðar Eiríkssonar kt. 061156-5189 og Sveitarfélagsins vegna lóðarinnar Fellstún 18. Skipulags- og byggingarnefnd staðfestir framangreint samkomulag. Lóðin Fellstún 18 er laus til umsóknar.

3.Suðurbraut 7 - Umsókn um breytta notkun og innkeyrslu.

Málsnúmer 1711138Vakta málsnúmer

Rúnar Númason kt. 130483-5349 og Valdís Hálfdánardóttir kt 270981-4889 sækja um heimild til að breyta notkun húseignarinnar Suðurbraut 7 á Hofsósi. Eignin er í dag skráð leikskólahúsnæði en mun verða breytt aftur í íbúðarhúsnæði. Einnig er sótt um nýja aðkomu að húsinu.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir breytta notkun. Skila þarf til byggingarfulltrúa nýjum aðaluppdráttum sem gera grein fyrir breytingum á húsi og lóð. Að því fengnu verður afstaða tekin til aðkomu að lóðinni.

4.Kirkjugata 9 Hofsósi - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1711110Vakta málsnúmer

Helgi Hrannar Traustason kt. 0105855119 og Vala Kristín Ófeigsdóttir kt. 291187-2859 óska eftir að byggja við hús sitt Kirkjugötu 9 Hofsósi samkvæmt meðfylgjandi rissi. Lóðamörk koma fram á teikningu en samkvæmt þessari hugmynd fer viðbygging umtalsvert yfir á næstu lóð, Kirkjugötu 11. Erindinu hafnað eins og það er fyrirlagt.

5.Geldingaholt II (landnr. 146030) - Umsókn um breytt landamerki

Málsnúmer 1711052Vakta málsnúmer

Með umsókn dagsettri 6. nóvember 2017 sækir Sigurjón Tobíasson kt. 081244-5969 þinglýstur eigandi Geldingaholts II (landnr. 146030) og Geldingaholts, land 1 (landnr. 223292) um heimild skipulags-og byggingarnefndar og sveitarstjórnar til þess að breyta landamerkjum framangreindra jarða. Framlagðir yfirlits-og afstöðuuppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni gera grein fyrir erindinu. Númer uppdrátta er S-101 og S-104 í verki 7162-22, dags. 5. nóvember 2017. Skýringauppdrættir nr. S-102 og S-103 í verki 7162-22, dags. 5. nóvember 2017.
Einbýlishús, matshluti 01 með matsnúmerið 214-0429 mun áfram tilheyra Geldingaholti II (landnr. 146030).
Þrjú minkahús, matshluti 02 með matsnúmerið 214-0430, matshluti 03 með matsnúmerið 214-0431 og matshluti 04 með matsnúmerið 214-0432 sem nú tilheyrir Geldingaholti II (landnr. 146030) mun eftir breytinguna tilheyra Geldingaholti, land 1 (landnr. 223292)
Þá er sótt um að landið Geldingaholt, land 1 (landnr. 223292) fái heitið Geldingaholt 4.
Lögbýlaréttur sem nú tilheyrir Geldingaholti II (landnr. 146030) mun eftir breytinguna tilheyra Geldingaholti, 4 (landnr. 223292).Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.

6.Reynistaður (145992) - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1710157Vakta málsnúmer

Helgi Jóhann Sigurðsson kt.140257-5169, þinglýstur eigandi jarðarinnar Reynistaður, landnúmer 145992 óskar eftir heimild til að stofna 8.384 m² spildu úr landi jarðarinnar. skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 779801 útg. 23. okt. 2017. Afstöðuppdráttur unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni. Óskað er eftir að nýstofnaða landið fái heitið „Reynistaður 2“,Engin fasteign er á umræddri spildu og mun lögbýlarétturinn áfram fylgja Reynistað, landnr. 145992. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.

7.Iðutún 16 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu.

Málsnúmer 1710124Vakta málsnúmer

Rúnar Már Grétarsson kt. 231272-5189 Iðutúni 16 á Sauðárkróki óskar heimildar til að breikka innkeyrslu að lóðinnin um 4 metra til norðurs. Meðfylgjandi gögn, dagsett 23. október gera grein fyrir fyrirhuguðum breytingum. Fyrir liggur umsögn sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs. Erindið samþykkt. Framkvæmdin verði unnin á kostnað umsækjanda undir eftirliti veitu- og framkvæmdasviðs.

8.Sæmundargata 11 143818 - Umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 1710063Vakta málsnúmer

Snævar Örn Jónsson kt 130488-4129 Sæmundargötu 11 á Sauðárkróki sækir um stækkun lóðarinnar Sæmundargata 11 til austurs. Samkvæmt Lóðarleigusamningi er lóðin 360 ferm. Samþykkt að úthluta stærri lóð. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að gera nýtt lóðarblað og lóðarleigusamning og leggja fyrir nefndina.

9.Reykjarhóll lóð 146062 - Aðveitustöð RARIK

Málsnúmer 1708171Vakta málsnúmer

Jens Kristinn Gíslason kt 241178-4989 sækir fh. Landsnets hf. um heimild til að deiliskipulaggja lóðina Reykjarhóll lóð, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar nýs 66kV tengivirkis á lóðinni. Lóðin er í aðalskipulagi skilgreind iðnaðarlóð merkt I 5.2 á aðalskipulagsuppdrætti og hefur landnúmer 146062. Erindið samþykkt eins og það er fyrir lagt.

10.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 58

Málsnúmer 1711016FVakta málsnúmer

58. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa lagður fram til kynningar

11.Kynning á áformum Landsnets um jarðstrengslögn frá Varmahlíð til Sauðárkróks

Málsnúmer 1710173Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Landsneti þar sem kynnt eru áform um jarðstrengslögn frá Varmahlíð til Sauðárkróks.

Fundi slitið - kl. 14:30.