Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

687. fundur 12. febrúar 2015 kl. 09:00 - 10:00 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Ásta Björg Pálmadótttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Gjaldskrá Húss frítímans 2015

Málsnúmer 1501039Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga frá 217. fundi félags- og tómstundanefndar þann 4. febrúar 2015 umi gjaldskrá ársins 2015 vegna útleigu Húss frítímans.
Byggðarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar.

2.Ósk um leigu á Sólgarðaskóla sumarið 2015

Málsnúmer 1501374Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 29. janúar 2015 frá Erni A. Þórarinssyni, kt. 120151-3049, þar sem hann óskar eftir því að fá Sólgarðaskóla í Fljótum leigðan fyrir rekstur ferðaþjónustu á komandi sumri líkt og undanfarin ár.
Byggðarráð samþykkir að leigja Erni skólann tímabilið 1. júní til 20. ágúst 2015.

3.Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2015 - Sauðárkrókskirkjugarður

Málsnúmer 1502098Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði við stækkun Sauðárkrókskirkjugarðs. Gerð er tillaga um að hækka fjárheimildir á málaflokki 11210-Almenningsgarðar um 5.300.000 kr. Útgjöldunum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Byggðarráð samþykkir framangreindan viðauka.

4.Sauðárkrókskirkjugarður - endurbætur

Málsnúmer 1502097Vakta málsnúmer

Á fund sveitarstjóra komu fulltrúar Sauðárkrókssóknar og skýrðu frá framkvæmdum við stækkun Sauðárkrókskirkjugarðs og óskuðu eftir framlagi frá sveitarfélaginu í samræmi við viðmiðunarreglur Kirkjugarðsráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kirkjugarðsstæði og fleira. Framkvæmdakostnaður er 9.627.330 kr. Hlutur sveitarfélagsins í framkvæmdinni er 5.274.272 kr.
Byggðarráð samþykkir að taka þátt i framkvæmdinni og kostnaður verði færður á málaflokk 11210-Almenningsgarðar.

5.Tilnefning í starfshóp um aukna samvinnu háskóla (Hólar, Bifröst, Hvanneyri)

Málsnúmer 1502088Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá mennta- og menningarráðuneytinu dagsett 3. febrúar 2015 vegna stefnumótunar um málefnasviðið "háskólar og vísindastarfsemi". Líklegt er að á grundvelli hennar verði m.a. mótaðar tillögur um breytingu á háskólakerfinu á Íslandi með áherslu á öfluga, framsækna og samþætta háskólastarfsemi, aukin gæði og bætta nýtingu fjármuna. Hyggst ráðuneytið stofna hóp sem hefur það verkefni að afla upplýsinga og gagna um fjárhagslegan og faglegan ávinning af aukinni samvinnu og/eða samrekstri Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskólans á Hólum og Háskólans á Bifröst. Óskar ráðuneytið eftir tilnefningu í hópinn frá sveitarfélaginu. Aðrir í hópnum verða tilnefndir af framangreindum háskólum, Bændasamtökum Íslands og Borgarbyggð. Einnig verða Haraldur Benediktsson og Ásmundur Einar Daðason alþingismenn og Hellen Gunnarsdóttir og Þórarinn Sólmundarson fulltrúar ráðuneytisins í hópnum.
Byggðarráð samþykkir að tilnefna Ástu Pálmadóttur, sveitarstjóra í starfshópinn.

Bjarni Jónsson leggur fram svohljóðandi bókun:
Menntamálaráðuneytið ásamt stjórnarmeirihlutanum undirbýr nú nýja atlögu að háskólastarfi á landsbyggðinni og landbúnaðarháskólunum á Hólum og Hvanneyri.
Nú stendur til að leggja niður Hólaskóla, Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og Bifröst og skera niður fjárveitingar til háskólastarfs á landsbyggðinni. Splæsa á skólunum saman í eina sjálfseignarstofnun sem greiðir fyrir því sem nú er til umræðu að taka upp skólagjöld á Hólum og Hvanneyri til að mæta fyrirhuguðum niðurskurði til þeirra, eins og fram hefur komið á Alþingi.
Fyrirhugaðar breytingar munu vega að háskólastarfi á þessum stöðum og vinna gegn tækifærum ungs fólks til að sækja sér menntun til starfa í landbúnaði og tengdum greinum.

Skipan starfshóps nú til að fara yfir kosti þess að sameina skólana og leiðir til að skera niður fjárveitingar til þeirra er einungis ein varðan í réttlætingarferli fyrir þessari vegferð og fyrirfram gefna niðurstöðu.

Vart verður séð að Bændasamtök Íslands eða þau sveitarfélög og landshlutar sem í hlut eiga geti ljáð samþykki fyrir þeim áformum sem hafa verið kynnt um framtíð Háskólans á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands, í ljósi fyrirsjáanlegra neikvæðra áhrifa á viðkomandi byggðarlög og háskólamenntun á landsbyggðinni.

Bjarni Jónsson
V- lista

6.Kynning á tillögu að stafsleyfi fyrir Vegagerðina á hafnarsvæði Sauðárkróki

Málsnúmer 1501022Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tillaga að starfsleyfi fyrir Vegagerðina fyrir rekstur bikbirgðastöðvar á hafnarsvæði Sauðárkrókshafnar sem og bókun 107. fundar umhverfis- og samgöngunefndar frá 6. febrúar 2015.
Vakin er athygli á að tillagan liggur frammi ásamt umsóknargögnum í Ráðhúsi til 9. mars 2015. Tillöguna má einnig nálgast á vefsíðu Umhverfisstofnunar, http://www.umhverfisstofnun.is/ ásamt fylgigögnum. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 9. mars 2015.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

7.Tilnefning í ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 1502038Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar afrit af bréfi Sambands íslenskra sveitarfélaga til innanríkisráðuneytisins frá 2. febrúar 2015 varðandi tilnefningar í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Meðal annarra er Bjarni Jónsson sveitarstjórnarfulltrúi sveitarfélagsins tilnefndur í nefndina.

Fundi slitið - kl. 10:00.