Fara í efni

Sætún og Hátún Hofsósi, íbúðarhúsalóðir til úthlutunar

24.01.2024
Yfirlitsmynd af svæðinu sem um ræðir.

Sætún nr. 12, Hátún nr. 1, 2, 3, 4 og 5 – einbýlishúsalóðir

Hátún nr. 6-8 – parhúsalóð

Sætún nr. 1-5 – raðhúsalóð

Skipulagsnefnd Skagafjarðar auglýsir til úthlutunar einbýlishúsalóðirnar Sætún 12 og Hátún 1, 2, 3, 4 og 5, raðhúsalóðina Sætún 1-5 og parhúsalóðina Hátún 6-8 í samræmi við úthlutunarreglur Skagafjarðar, dags. 14. september 2022. Sótt er um lóðir hér á vef Skagafjarðar, einnig er hægt er að skoða og sækja um lóðirnar á kortasjá Skagafjarðar, með því að haka við „Lausar lóðir“ undir „Fasteignir“ í valglugganum.

Um úthlutun lóðanna gilda reglur um úthlutun byggingarlóða í Skagafirði. 

Lóðirnar eru auglýstar frá og með 24. janúar 2024 til og með 9. febrúar 2024.

Umsóknir skulu vera í samræmi við úthlutunarreglur Skagafjarðar og frestur lóðarhafa til framkvæmda er skv. 10. gr. úthlutunarreglna. 

Einungis er hægt að sækja um eina lóð og aðra tilgreinda lóð til vara. Dregið verður úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um lóð.

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar