Fara í efni

Hlutastörf í liðveislu á Freyjugötu eru laus til umsóknar

19.04.2017

Tvö hlutastörf í liðveislu á Freyjugötu eru laus til umsóknar

 

Upphaf starfs: 15. maí 2017 eða eftir samkomulagi.

Fjöldi & starfshlutfall: 2 störf í 45% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Félagsleg liðveisla II.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar einstaklinga með fötlun. Starfið felst meðal annars í því að leiðbeina einstaklingum við að stýra daglegu lífi og auka færni sína og sjálfstæði.

Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fólki með fötlun og hefur að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttsemi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Vaktavinna þó ekki næturvaktir.

Launakjör: Störfin henta konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2017

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti; sigthrudurh@skagafjorður.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.