Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál - Sólheimar 2

31.01.2024
Yfirlitsmynd af svæðinu.

Tillaga að deiliskipulagi – Sólheimar 2, í Blönduhlíð

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 22. fundi sínum þann 17. janúar 2024 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Sólheima 2 í Blönduhlíð í Skagafirði skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð dags. 4. janúar 2024 og er unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir hönd landeigenda. Skipulagssvæðið er 11,3 ha að stærð í landi Sólheima 2, landnúmer L234457. Skipulagsuppdráttur nr. DS-01 sýnir fyrirhugaða uppbyggingu á Sólheimum 2. Uppdrátturinn sýnir staðsetningu byggingarreita, lóðamarka, vegtenginga og aðkomu að byggingum, ásamt helstu byggingarskilmálum.

Tillagan er auglýst frá 31. janúar til og með 15. mars 2024. Hægt er að skoða skipulagstillöguna í nýrri Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 449/2023. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin hér fyrir neðan og á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 449/2023 í síðasta lagi 15. mars 2024. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is.

Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

 

Tillaga að deiliskipulagi - Sólheimar 2 í Blönduhlíð

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar