Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar

186. fundur 15. desember 2021 kl. 14:00 - 15:30 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir formaður
  • Guðlaugur Skúlason varaform.
  • Steinar Skarphéðinsson ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Valur Valsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Fundagerðir Hafnasambands Ísl 2021

Málsnúmer 2101005Vakta málsnúmer

Fundargerðir nr. 437, 438, 439 og 440 frá stjórn Hafnarsambands Íslands lagðar fram til kynningar. Einnig var farið yfir dóm frá Héraðsdómi Norðurlands eystra frá 8. nóvember sl. þar sem úrskurðað var um ágreining Hafnarsjóðs Norðurþings og rekstraraðila í Húsavíkurhöfn.

Hafnarstjóri og sviðsstjóri fara yfir dóminn. Dómur þessi hefur fordæmisgildi.

Dagur Þór Baldvinsson sat fundinn undir þessum lið

2.Samráð; Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum nr. 61 2013

Málsnúmer 2112059Vakta málsnúmer

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 227/2021, Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2013.

Hafnarstjóri fór yfir breytingar á hafnarlögum. Hafnarsamband Íslands skilar inn umsögn um málið fyrir allar hafnir.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við verklagið.

Dagur Þór Baldvinsson sat fundinn undir þessum lið

3.Aðkoma að Sauðárkróki að norðan á Skarðseyri við Steinull

Málsnúmer 2010110Vakta málsnúmer

Vegagerðin svaraði fyrirspurn sveitarfélagsins þann 11.11.2021 og gerir ekki athugasemdir við framkomnar hugmyndir en bendir á að sækja þarf um formlegt leyfi til framkvæmda.

Nefndin felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við Steinull og skipulagsfulltrúa.

4.Uppfærsla svæðisáætlana vegna lagabreytinga

Málsnúmer 2112039Vakta málsnúmer

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur fjallað um þær breytingar sem framundan eru í úrgangsmálum í kjölfar nýlegra lagabreytinga. Stjórnin áréttar að mikilvægt er fyrir sveitarfélögin að hefja nú þegar undirbúning að gildistöku lagabreytinganna og uppfærslu svæðisáætlana um meðhöndlun úrgangs með hliðsjón af þeim og nýlega samþykktri stefnu um meðhöndlun úrgangs. Öll útboð sem framundan eru, er varða söfnun og aðra meðhöndlun úrgangs, þurfa að taka tillit til umræddra lagabreytinga.

Nefndin felur sviðsstjóra að upplýsa þá sem koma að útboðsgerð sorphirðu í Skagafirði um þessar umræddu lagabreytingar.

5.Fyrirhuguð niðurfelling vega

Málsnúmer 2111010Vakta málsnúmer

Vegagerðin tilkynnir niðurfellingu eftirtalinna vega af vegaskrá þar sem þar er ekki lengur föst búseta
Brennigerðisvegur (7486-01)
Messuholtsvegur (7788-01)
Sleitustaðavegur (7750-01)
Hraunavegur (7899-01)

Umhverfis- og samgöngunefnd minnir á að þegar engin föst búseta er lengur á býlum, falla afleggjarar út af vegaskrá. Flytji fólk aftur á býlin ber þeim að tilkynna Vegagerðinni strax um breytinguna og mun þá vegurinn aftur verða tekinn inn í vegaskrá.

6.Skilavegir - niðurstaða starfshóps

Málsnúmer 2109097Vakta málsnúmer

Málið var áður á dagskrá umhverfis- og samgöngunefndar á 184. fundi þann 20. okt. síðastliðinn og á dagskrá á fundi nr. 416 sveitarstjórnar þann 27. okt.

Sviðsstjóri og sveitarstjóri funduðu með Vegagerðinni og fengu frekari upplýsingar um stöðu skilavega og skilin á Hofsósbraut til sveitarfélagsins. Vegagerðin endurtók tilboð sitt um skilin á veginum með þeim viðhaldsframkvæmdum og fjármunum til viðhalds á ljósastaurum og umferðaröryggismannvirkjum eins og áður hefur komið fram.

Nefndin lýsir ánægju sinni með framvindu málsins og felur sviðsstjóra og sveitarstjóra að ganga frá samningnum.

7.Styrkbeiðni

Málsnúmer 2112066Vakta málsnúmer

Erna Geirsdóttir f.h. Skógræktarfélgs Skagafjarðar sækir um styrk að upphæð 500.000 kr. til skógarhöggs og stígagerðar í reit félagsins norðan Hofs í Varmahlíð og til plöntunar í Brúnaskógi.

Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar til byggðarráðs.

8.Svæðisáætlun sveitarfélaga

Málsnúmer 2111190Vakta málsnúmer

Á 991. fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 24. nóvember 2021 var tekið fyrir neðangreint erindi.

Lagt fram bréf dagsett 15. nóvember 2021 frá Norðurá bs. þar sem stjórn Norðurár bs. óskar samþykkis aðildarsveitarfélaganna, að Norðurá bs. verði mótaðili Flokkunar Eyjafjörður ehf. við gerð svæðisáætlunar sem taki við af þeirri sem nú er í gildi fyrir tímabilið 2015-2026.

Byggðarráð samþykkti erindið fyrir sitt leiti.

Fundi slitið - kl. 15:30.