Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar

149. fundur 21. janúar 2019 kl. 10:00 - 11:10 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir formaður
  • Guðlaugur Skúlason varaform.
  • Inga Katrín D. Magnúsdóttir varam.
  • Högni Elfar Gylfason varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
Dagur Þór Baldvinsson, hafnarstjóri, sat 1., 2. og 3. lið fundar.

1.Deiliskipulag hafnarsvæðis á Sauðárkróki

Málsnúmer 1901189Vakta málsnúmer

Rædd var staða við deiliskipulagsgerð fyrir hafnarsvæði á Sauðárkróki og farið yfir drög að skipulagslýsingu frá árinu 2016.
Vinna er nú komin í gang að nýju við deiliskipulagsgerð fyrir hafnarsvæðið á Sauðárkróki og hefur Verkfræðistofan Stoð verið fengin til verkefnisins.
Stefnt er að sameiginlegum fundi umhverfis- og samgöngunefndar og skipulags- og bygginganefndar innan tíðar þar sem farið verður yfir deiliskipulagsvinnuna.

2.Ályktun Hafnasambands Ísl. um öryggi í höfnum

Málsnúmer 1811311Vakta málsnúmer

Lagt var fyrir erindi frá hafnasambandi Íslands varðandi öryggi í höfnum.
Í erindinu er komið á framfæri ályktun hafnasambandsþings sem haldið var í október sl.
Í ályktuninni er þeim tilmælum beint til hafna að unnið verði áhættumat þar sem leitast verður við að benda á hættur sem stafað geta að þeim sem fara um hafnarsvæði og hafnarbakka. Því er einnig beint til stærri hafna að unnið verði að öryggisvottun hafnanna.
Umhverfis- og samgöngunefnd beinir því til hafnarstjóra að unnið verði áhættumat fyrir Skagafjarðarhafnir. Í framhaldinu verði skoðuð þörf á öryggisvottun.

3.Fundagerðir Hafnarsambands Ísl. 2018

Málsnúmer 1801005Vakta málsnúmer

Lagðar voru fram til kynningar fundargerðir nr. 406 til 408 stjórnar Hafnasambands Íslands.

4.Nýr áfangi við endurheimt Brimnesskóga í Skagafirði

Málsnúmer 1901051Vakta málsnúmer

Lagt var fram erindi frá Steini Kárasyni, framkvæmdastjóra Brimnesskóga.
Í erindinu óskar félagið eftir viðræðum við umhverfis- og samgöngunefnd um nýjan áfanga og útvíkkun á verkefni um endurheimt Brimnesskóga í Skagafirði.
Umhverfis- og samgöngunefnd tekur vel í erindið og felur sviðstjóra og formanni að afla frekari upplýsinga um verkefnið.

5.Umhverfisdagar 2019

Málsnúmer 1901192Vakta málsnúmer

Ræddar voru hugmyndir um framkvæmd umhverfisdaga í Skagafirði árið 2019.

Fundi slitið - kl. 11:10.