Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd

395. fundur 18. desember 2020 kl. 12:30 - 12:45 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Regína Valdimarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
  • Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Freyjugata 9 - Afmörkun lóðar

Málsnúmer 2012129Vakta málsnúmer

Skipulagsfulltrúi leggur fram gögn sem skýra afmörkun íbúðarhúsalóðarinnar Freyjugötu 9, L143342, á Sauðárkróki. Gögn unnin af Stoð ehf verkfræðistofu. Lóðin hefur verið mæld upp með nákvæmum gps tækjum, og er niðurstaða mælinga, að stærð lóðar er 3.780 m2, og er í samræmi við gildandi deiliskipulag gamla bæjarins á Sauðárkróki.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir afmörkun lóðarinnar.

Fundi slitið - kl. 12:45.