Fara í efni

Samstarfsnefnd með Akrahreppi

29. fundur 05. maí 2015 kl. 17:00 - 18:35 í Ráðhúsi, Skagf.braut 17-21
Nefndarmenn
  • Gunnsteinn Björnsson aðalm.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir aðalm.
  • Agnar Halldór Gunnarsson fulltrúi Akrahrepps
  • Jón Sigurðsson fulltrúi Akrahrepps
Starfsmenn
  • Ásta Björg Pálmadótttir sveitarstjóri
  • Herdís Á. Sæmundardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Skólastjóri Varmahlíðarskóla

Málsnúmer 1502244Vakta málsnúmer

Skólastjóri Varmahlíðarskóla hefur sagt starfi sínu lausu. Nefndin samþykkir að auglýsa eftir nýjum skólastjóra Varmahlíðarskóla sem taki til starfa 1.ágúst n.k.

2.Endurskoðun samstarfssamninga - Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur.

Málsnúmer 1502247Vakta málsnúmer

Samþykkt að tímasetja vinnu við endurskoðun samstarfssamninga og að tillögur liggi fyrir 1.júlí n.k.

3.Varmahlíðarskóli - staða húsnæðismála

Málsnúmer 1411114Vakta málsnúmer

Farið yfir afstöðu sveitarfélaganna varðandi framtíðarskipulag leik- og grunnskólans í Varmahlíð.

Eftirfarandi bókanir voru gerðar:

?Fulltrúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í samstarfsnefndinni telja mikilvægt að horft sé til framtíðar þegar verið er að meta hvaða leið á að fara varðandi stækkun á rými leikskólans Birkilundar,bæði hvað varðar húsnæði og faglegt starf. Við teljum að með því að færa starfsemi leikskólans Birkilundar í hús grunnskólans skapist tækifæri til að hugsa þessi skólastig sem eina heild og gera ráð fyrir ýmis konar samvinnu og samnýtingu. Aðkallandi er að fara í viðhald á húsnæði grunnskólans í Varmahlíð og með því að horfa til þess að flytja skólastarf leik- grunnskóla í eitt húsnæði náist fram þrír mikilvægir póstar, lausnir varðandi húsnæði fyrir leikskólann, bætt aðstaða fyrir starfsemi grunnskólans og aðkallandi viðhaldi grunnskólans yrði sinnt.
Nú liggja fyrir teikningar sem unnar voru í framhaldi af athugasemdum sem fram hafa komið frá hagsmunaaðilum leik- og grunnskóla í Varmahlíð á fundum. Fulltrúar sveitarfélagsins leggja áherslu á að ákvarðanir um leiðir og framkvæmdir verði teknar sem fyrst og jafnhliða fari fram kynning og undirbúiningur með skólafólki. Einnig verði skoðað hvernig áfangaskipta megi framkvæmdinni.?

Gunnsteinn Björnsson
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir

"Fulltrúar Akrahrepps í samstarfsnefnd sveitarfélaganna telja að farsælast sé að leysa húsnæðisvanda leikskólans Birkilundar í Varmahlíð með því að byggja við leikskólann. Umhverfi leikskólans er ákaflega heppilegt hvað skjól varðar. Rétt er að hafa í huga að kostnaður við að flytja leikskólann í Varmahlíðarskóla er líklega tvöfalt hærri en að byggja við leikskólann á núverandi stað. Inn í þeirri tölu eru þær endurbætur sem þarf að gera á Varmahlíðarskóla ef að flutningi verður. Fram hefur komið ákveðin andstaða við að flytja leikskólann inn í Varmahlíðarskóla og ekki óeðlilegt að taka mið af sjónarmiðum íbúa á svæðinu. Fulltrúar Akrahrepps gera sér grein fyrir að þó byggt verði við leikskólann þarf að ráðast í talsverðar endurbætur á Varmahlíðarskóla. Afstaða fulltrúa Akrahrepps er byggð á afgreiðslu hreppsnefndar Akrahrepps"

Agnar H. Gunnarsson
Jón Sigurðsson

"Fulltrúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar árétta að kostnaðarmat við flutning og stækkun leikskóla gerir ennfremur ráð fyrir verulegum endurbótum á húsnæði grunnskólans í Varmahlíð"

Gunnsteinn Björnsson
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir

Fulltrúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar vísa málinu til Byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Fundi slitið - kl. 18:35.