Fara í efni

Aðalgata 6 - Umsókn um breytta notkun.

Málsnúmer 1009139

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 214. fundur - 22.09.2010

Aðalgata 6 Sauðárkróki. Anna Lea Gestsdóttir og Guðjón Örn Jóhannsson eigendur  einbýlishúss og verslunarhúsnæðis með fastanúmer 213-1106  sem stendur á lóðinni nr. 6 við Aðalgötu á Sauðárkróki, óska eftir samþykki skipulags-og byggingarnefndar Skagafjarðar, til að breyta notkun þess hluta hússins sem nýttur hefur verið sem verslunarhúsnæði, í hárgreiðslustofu samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Erindið samþykkt. 

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 271. fundur - 02.11.2010

Afgreiðsla 214. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 271. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.