Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

1001. fundur 02. febrúar 2022 kl. 11:30 - 12:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varam.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Ólafur Bjarni Haraldsson og Álfhildur Leifsdóttir tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.
Byggðarráð samþykkir samhljóða í upphafi fundar að taka mál 2202028-Breytingar á innheimtu gjalda vegna Covid-19, á dagskrá með afbrigðum.

1.Skerðing á strandveiðum

Málsnúmer 2201283Vakta málsnúmer

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á matvælaráðherra að endurskoða ákvörðun sína um skerðingu heildarafla til strandveiða á komandi sumri. Í því sambandi mætti t.a.m. horfa til fyrirsjáanlegs svigrúms sem skapast mun á skiptimarkaði í öðrum fiskitegundum og nýta það til aukningar heildarafla strandveiða. Þannig er unnt að styðja við það mikilvæga byggðamál sem strandveiðar eru, án þess að gengið sé gegn vísindalegri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sem miðar að sjálfbærri nýtingu fiskistofnanna við Ísland.
Byggðarráð telur jafnframt að sú stefna sem mótuð var fyrir fjórum árum um að heimila strandveiðar í 12 daga á mánuði, alls 48 daga á sumri hafi reynst afar skynsamleg. Þannig náðist hvoru tveggja; að eyða hættulegum keppnisþætti veiðanna og að tryggja að mestu jafnræði milli veiðisvæða allt í kringum landið.

2.Staðfesting kjörskrár við sameiningarkosningar 19. febr 2022

Málsnúmer 2201086Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi bókun 420. fundar sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá 12. janúar 2021.
"Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum, að fela byggðarráði að afgreiða til fullnaðar eftirtalin verkefni vegna kosninga um sameiningu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps laugardaginn 19. febrúar 2022: Að staðfesta kjörskrá, úrskurða um breytingar á kjörskrá og leiða til lykta önnur þau mál sem kunna að heyra undir verksvið sveitarstjórnar vegna kosninganna."
Byggðarráð staðfestir kjörskrá vegna sameiningakosninga þann 19. febrúar 2022.

3.Breytingar á innheimtu gjalda vegna Covid-19

Málsnúmer 2202028Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir breytingar á gjaldtöku fyrir vistun barna tímabilið 3.-28. janúar 2022 vegna sóttkvíar og einangunar skv. fyrirskipun yfirvalda vegna Covid-19 veirunnar. Greiðsluhlutdeild nái einungis til þeirrar þjónustu sem raunverulega var hægt að nýta þann tíma, þ.e. hjá leikskóla, grunnskóla og frístund.

4.Umsagnarbeiðni; Þingsályktunartillaga um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara

Málsnúmer 2201258Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá nefndsviði Alþingis, dagsettur 26. janúar 2022. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 12. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. febrúar 2022.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar fagnar framlagðri tillögu til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara. Ljóst er að tjón af völdum náttúruhamfara getur oft verið gríðarlegt og reynst þeim sem fyrir því verða ofviða. Því er afar mikilvægt að tryggingavernd vegna náttúruhamfara sé sanngjörn, skilvirk og skýr.

5.Samráð; Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál nr. 70 2012

Málsnúmer 2201226Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. janúar 2022 þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 15/2022, "Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 (leiðrétting o.fl.)". Umsagnarfrestur er til og með 07.02.2022.

6.Samráð; Frumvarp um breytingu á lögum nr. 78 2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar

Málsnúmer 2201279Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 28. janúar 2022 þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 21/2022, "Frumvarp um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar". Umsagnarfrestur er til og með 11.02.2022.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir ánægju sinni með áform um breytingu á lögum nr. 78/2002 um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, sem hefur það að markmiði að tryggja einfaldara og sanngjarnara kerfi í kringum mótframlag ríkisins vegna kaupa á varmadælum. Ljóst er að hvatar til aukinnar notkunar varmadæla á köldum svæðum sem njóta ekki húshitunar með jarðvarma geta skilað umtalsverðum ávinningi til lengri tíma litið fyrir neytendur, ríkið og raforkukerfið í heild sinni. Orkusparnaður í kjölfar aukinnar notkunar varmadæla getur skipt verulegu máli í þeim orkuskiptum sem framundan eru.

7.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á lögum 55 2003 um meðhöndlun úrgangs

Málsnúmer 2201278Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 28. janúar 2022 þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 23/2022, "Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs (losun úrgangs í náttúrunni)". Umsagnarfrestur er til og með 11.02.2022.

8.Málefni bensínstöðvar N1 á Hofsósi

Málsnúmer 2002003Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla frá Verkís um niðurstöður vöktunarferðar í desember 2021 - mælingar á TVOC, í tengslum við rannsókn vegna olíulyktar eftir eldsneytisleka úr neðanjarðargeymi N1 á Hofsósi.

9.Húsnæðissjálfseignarstofnun á landsbyggðinni

Málsnúmer 2109379Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 31. janúar 2022 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Lögð fram til kynningar fundargerð umræðufundar um landsbyggðar hses þann 26. janúar 2022. Á fundinum var farið yfir helstu forsendur aukins samstarfs sveitarfélaga til að stuðla að uppbyggingu og framboði á almennum íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins. Gert er ráð fyrir því að öll sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins geti lagt íbúðir inn í félagið eða tekið þátt í uppbyggingu. Markmiðið er að ná fram stærðarhagkvæmni sem næst ekki með litlum hses. félögum sem eiga aðeins fáar íbúðir.
Í samræmi við niðurstöðu fundarins stefna HMS og sambandið að því að boða til stofnfundar húsnæðissjálfseignarstofnunar (HSES) sem starfi í framangreindum tilgangi.

10.Kynningarfundur vegna greininga á útfærslum í innheimtu sveitarfélaga

Málsnúmer 2201260Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 27. janúar 2022. Samband íslenskra sveitarfélaga efnir til opins stafræns kynningarfundar fimmtudaginn 3. febrúar 2022, kl. 12:00-13:30 um innleiðingu breytinga á innheimtu sveitarfélaga fyrir úrgangsmeðhöndlun. Fundurinn kallast "Borgað þegar hent er - greining á útfærslum í innheimtu sveitarfélaga fyrir úrgangsmeðhöndlun". Þann 1. janúar 2023 koma til framkvæmda breytingar á lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs um að innheimta fyrir meðhöndlun úrgangs skuli vera sem næst raunkostnaði niður á hvern aðila. Slík aðgerð við innheimtu byggist á mengunarbótareglunni þar sem hver og einn borgar fyrir það sem hann hendir (e. Pay as you throw).

Fundi slitið - kl. 12:15.