Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

978. fundur 25. ágúst 2021 kl. 11:30 - 12:05 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varam.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir varam.
  • Álfhildur Leifsdóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Málefni bensínstöðvar N1 á Hofsósi

Málsnúmer 2002003Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 25. ágúst 2021 frá Eflu verkfræðistofu, varðandi mat á tillögum frá Verkís um mögulegar hreinsunaraðgerðir á Hofsósi vegna bensínleka frá bensínstöð N1.
Byggðarráð samþykkir að senda álit Eflu á tillögum á hreinsunaraðgerðum til N1 og leggur áherslu á að fyrirtækið hafi náið samráð við fasteignaeigendur um fyrirhugaðar aðgerðir og að þeim verði lokið fyrir vetrarbyrjun.

2.Sérstakt framlag Kaupfélags Skagfirðinga við samfélagsleg verkefni í Skagafirði

Málsnúmer 2107020Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 2. júlí 2021 frá Kaupfélagi Skagfirðinga varðandi sérstakt framlag Kaupfélags Skagfirðinga við samfélagsleg verkefni í Skagafirði. Stjórn Kaupfélags Skagfirðinga bókaði svo á fundi sínum þann 1. júlí s.l.:
Kaupfélag Skagfirðinga samþykkir að leggja fram 200 milljónir króna á næstu tveim árum til samfélagslegra verkefna í Skagafirði.
Þessar 200 milljónir eru hugsaðar sem stuðningur við verkefni á vegum sveitarfélaga í Skagafirði, sem ætluð eru til að bæta búsetugæði í héraði, meðal annars með því að leggja og bæta göngustíga, malbika sérstök svæði, fjölga útivistarsvæðum, byggja upp skíðasvæðið í Tindastóli, bæta félagsaðstöðu íbúa og margt annað er varðar umhverfi og búsetugæði.
Með þessu meðal annars, vill fyrirtækið undirstrika samfélagslega ábyrgð sína og skapa sem bestar aðstæður og umhverfi fyrir íbúa Skagafjarðar.
Af hálfu Kaupfélags Skagfirðinga verða í samráðshóp varðandi verkefnið: Stjórnarformaður KS, varaformaður KS og ritari stjórnar KS. Auk þess kaupfélagsstjóri, aðstoðarkaupfélagsstjóri og framkvæmdastjóri FISK-Seafood.
Byggðarráð samþykkir að fulltrúar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í samráðshópnum verði fulltrúar byggðarráðs og sveitarstjóri.

3.Samráð; Skilgreining opinberrar þjónustu og jöfnun aðgengis

Málsnúmer 2108171Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 19. ágúst 2021 þar sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 157/2021, "Skilgreining opinberrar þjónustu og jöfnun aðgengis". Umsagnarfrestur er til og með 01.10.2021.

4.Samráð; Drög að reglugerð um umhverfismat framkvæmda og áætlana

Málsnúmer 2108190Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 20. ágúst 2021 þar sem umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 154/2021, "Drög að reglugerð um umhverfismat framkvæmda og áætlana". Umsagnarfrestur er til og með 03.09.2021.

Fundi slitið - kl. 12:05.