Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

955. fundur 03. mars 2021 kl. 11:30 - 13:35 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Stefán Vagn Stefánsson varaform.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá

1.Umsögn um grásleppufrumvarp

Málsnúmer 2102253Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 21. febrúar 2021 frá Drangey, smábátafélagi Skagafjarðar varðandi umsögn byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu). Magnús Jónsson formaður félagsins kom á fundinn til viðræðu.

2.Málefni bensínstöðvar N1 á Hofsósi

Málsnúmer 2002003Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið sat fundinn Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs og Baldvin Jónbjarnarson fulltrúi frá Eflu verkfræðistofu tók þátt í gegnum fjarfundabúnað.

3.Stúkubygging við gervigrasvöll

Málsnúmer 2010047Vakta málsnúmer

Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna áfram að málinu.
Sigfús Ingi Sigfússon vék af fundi kl. 13:00.

4.Ársalir skólabygging

Málsnúmer 2008143Vakta málsnúmer

Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið til viðræðu um viðbyggingu við leikskólann Ársali við Árkíl á Sauðárkróki.

5.Ljósheimar 145954 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2102249Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 22. febrúar 2021 úr máli 2102263 hjá sýslumanninum á Norðurlandi vestra. Með umsókn dagsettri 15.02.2021 sækir Sigurpáll Aðalsteinsson, f.h. Videosport ehf., kt. 470201-2150, um rekstrarleyfi til veitingu veitinga í flokki III í Félagsheimilinu Ljósheimum, 551 Sauðárkrókur. Fnr. 2139958.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

6.Steinsstaðaskóli 146227 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2102251Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 22. febrúar 2021 úr máli 2102262 hjá sýslumanninum á Norðurlandi vestra. Með umsókn dagsettri 16.02.2021 sækir Anna Hlín Jónsdóttir, f.h. Hlín ehf., kt. 591120-1150, um leyfi til að reka gististað í flokki III að Steinsstöðum, fnr. 2141480, 561 Varmahlíð.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

7.Umsagnarbeiðni; frumvarp til laga um matvæli (sýklalyfjanotkun)

Málsnúmer 2102256Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 23. febrúar 2021 frá nefndasviði Alþingis þar sem atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um matvæli (sýklalyfjanotkun), 140. mál.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar tekur undir markmið frumvarpsins um að nauðsynlegt sé að bæta miðlun upplýsinga til almennings um sýklalyfjanotkun við framleiðslu matvæla til neytenda. Með þeim hætti geta neytendur tekið upplýsta ákvörðun um kaup sín á matvælum, áttað sig betur á uppruna matvæla í matvælaverslunum og notkun sýklalyfja í þeim löndum. Upplýsingar sem þessar eru mikilvægar í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi og áhættunni sem felst í að það geti borist frá löndum með útbreitt ónæmi til landa með lítið ónæmi eins og Íslands. Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar bendir jafnframt á að rétt væri að huga að útvíkkun frumvarpsins þannig að sambærilegum upplýsingum verði miðlað til neytenda á veitingastöðum og í mötuneytum hér á landi.

Fundi slitið - kl. 13:35.