Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

425. fundur 05. mars 2008 kl. 12:00 - 14:27 á Hótel Varmahlíð
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Þriggja ára áætlun 2009-2011

Málsnúmer 0802078Vakta málsnúmer

Þriggja ára áælun lögð fram til síðari umræðu. Byggðarráð samþykkir að vísa áætluninni til síðari umræðu í sveitarstjórn.

2.Klórgeymsla Sundlaugar Sauðárkróks

Málsnúmer 0802109Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni sem samþykkt var á fundi félags- og tómstundanefndar 21. janúar 2008 um fá heimild til að gera klórgeymslu Sundlaugar Sauðárkróks þannig úr garði að hún uppfylli reglur um geymslu klórs í sundlaugum. Áætlaður kostnaður nemur um kr. 380.000. Byggðarráð samþykkir að að fela tæknideild að sjá um að láta framkvæma þær breytingar sem nauðsynlegar eru. Fjármagn tekið af viðhaldslið eignasjóðs. Jafnframt ítrekar byggðaráð að úttekt varðandi öryggismál varðandi klór og klórgeymslur á sundstöðum sveitarfélagsins verði hraðað.

3.Vátryggingayfirlit veitu- og hafnarmannvirkja

Málsnúmer 0803004Vakta málsnúmer

Lagt fram mat frá Viðlagatryggingu Íslands á viðlagatryggðum veitu- og hafnarmannvirkjum sveitarfélagsins m.v. verðlag 1. janúar 2008. Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu tæknideildar og Skagafjarðarveitna ehf.

4.Umsókn um lóð fyrir atvinnurekstur

Málsnúmer 0803002Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Olíuverzlun Íslands hf þar sem sótt er um lóð fyrir atvinnurekstur. Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu skipulags- og bygginganefndar.

5.Sáttmáli til sóknar í skólamálum í Skagafirði

Málsnúmer 0802076Vakta málsnúmer

Skipan starfshóps um framhalds- og háskólanám í Skagafirði í samræmi við niðurstöðu skýrslunnar Framhalds- og háskólanám í Skagafirði sem unnin var af Herdísi Sæmundardóttur. Byggðarráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins. Jafnframt er samþykkt að óska eftir því við stjórn Sáttmála til sóknar í skólamálum í Skagafirði að kosta til frekari vinnu Herdísar varðandi verkefnið og er þá miðað við þriggja mánaða vinnu.

6.Bréf frá Skagafjarðarhraðlest - skipan starfshóps

Málsnúmer 0802083Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Skagafjarðarhraðlestinni varðandi málefni Háskólans á Hólum. Óskað er eftir tilnefningu fulltrúa frá sveitarfélaginu í samráðshóp sem ræði og skoði framtíðarmöguleika varðandi eflingu háskólans og frekari vöxt hans til frekari styrktar atvinnu- og mannlífi í Skagafirði. Byggðarráð vísar til afgreiðslu fyrri liðar varðandi skipan fulltrúa í starfshóp.

7.Framtíðarskipan SSNV

Málsnúmer 0801098Vakta málsnúmer

Rætt um málefni aukaárþings SSNV.

8.Ársreikningur 2007 - Dvalarh. Sauðá

Málsnúmer 0803001Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur 2007 fyrir Dvalarheimili aldraðra á Sauðá (Hásæti 5a-5c), Sauðárkróki.

9.Ársfundur Íslenskra orkurannsókna 2008

Málsnúmer 0803008Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar boð um ársfund Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) 2008 sem haldinn verður á Akureyri 28. mars 2008.

10.Rafeindatækjaúrgangur 327. mál - frumvarp

Málsnúmer 0803012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá umhverfisnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs, 327. mál, EES-reglur, rafeindatækjaúrgangur.

11.Brunavarnir, 376. mál - frumv.

Málsnúmer 0803007Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá umhverfisnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar frumvarp til laga, Brunavarnir, 376. mál, flutningur verkefna Brunamálastofnunar o.fl. Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til skipulags- og bygginganefndar.

12.Mannvirki, 375. mál heildarlög - frumv.

Málsnúmer 0803006Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá umhverfisnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar frumvarp til laga, Mannvirki, 375. mál, heildarlög. Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til skipulags- og bygginganefndar.

13.Skipulagslög, 374. mál - frumv.

Málsnúmer 0803005Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá umhverfisnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga, Skipulagslög, 374. mál, heildarlög. Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til skipulags- og bygginganefndar.

14.Þingsályktun v. friðlýsingar Jökulsár 59. mál - umsagnarbeiðni

Málsnúmer 0802073Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá umhverfisnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um friðlýsingu austari- og vestari- Jökulsár í Skagafirði, 59. mál. Meirihluti byggðarráðs leggur fram eftirfarandi bókun: ?Samkvæmt lögum fara sveitarfélögin í landinu með skipulagsvaldið. Í fyrirliggjandi þingsályktunartillögu á þingskjali 59 - 59. máli er gert ráð fyrir að Alþingi taki það vald af sveitarfélögunum í Skagafirði. Tillagan lýsir því vantrausti í garð sveitarfélaga og sérstaklega sveitarfélaganna í Skagafirði til að taka þær ákvarðanir sem þeim ber samkvæmt lögum. Því hafnar byggðaráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar því að Alþingi álykti um skipulagsmál í Skagafirði. Þegar núverandi í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar tók við gerð Aðalskipulags lá fyrir að á aðalskipulagi yrði gert ráð fyrir Skatastaðavirkjun. Núverandi sveitarstjórn hefur hinsvegar skoðað málið frá ýmsum hliðum og samþykkti neðangreinda tillögu að meðferð þessa svæðis á fundi sveitarstjórnar þann 12. apríl 2007. Var tillagan samþykkt með 8 atkvæðum af 9. Tillagan hljóðar svo: ?Sveitarstjórn samþykkir að í tillögu að aðalskipulagi fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð, sem nú er unnið að, verði frestað skipulagningu þeirra svæða sem ætluð hafa verið fyrir Skatastaða- og Villinganesvirkjanir sbr. heimildarákv. í 20. gr. Skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997.? Greinargerð: Fram hafa komið nýjar hugmyndir, sem nú er unnið að rannsóknum á, er gera ráð fyrir breyttri hönnun mögulegra virkjana í Skagafirði. Þær hugmyndir, ef af yrði, þýða mun minni áhrif á náttúru og ferðaþjónustu á svæðinu. Verði þessar hugmyndir að veruleika er horft til þess að hvorug virkjunin verði samkvæmt núverandi útfærslum. Tryggja verður að nýtingarréttur á umræddum svæðum verði í höndum Skagfirðinga og einungis valdir þeir kostir sem efla atvinnu og mannlíf innan héraðs. Þá er það vilji meirihlutans að unnið verði að því að nýtingarréttur jökulánna verði alfarið í höndum heimamanna og tekið er undir þá hugmynd að eignarhald Héraðsvatna hf verði alfarið í höndum Skagfirðinga. Frestun skipulagningar á umræddum svæðum styður við baráttu heimamanna fyrir nýtingarréttinum á vatnasvæðinu í heild. Ákvarðanir um nýtingu á Jökulánum í Skagafirði og Héraðsvötnum verða aðeins teknar að undangengnum víðtækum rannsóknum og almennri upplýstri umræðu um kosti og galla nýtingarmöguleika, þar sem leitað verði álits íbúa Skagafjarðar?. Páll Dagbjartsson fulltrúi Sjálfstæðisflokks óskar bókað: ?Ég er mótfallinn því að þingsályktunartillaga, þ.skj. 59 - 59 um friðlýsingu austari- og vestari Jökulsár í Skagafirði verði samþykkt eins og hún liggur fyrir.? Bjarni Jónsson áheyrnarfulltrúi VG óskar bókað: ?VG í Skagafirði styður þingsályktunartillöguna og væntir þess að formaður Samfylkingarinnar og umhverfisráðherra standi við yfirlýsingar sínar varðandi friðun Jökulsánna og heitstrengingar í ?Fagra Ísland? og tryggi málinu brautargengi á Alþingi. Ljóst er að bókun fulltrúa meirihlutans að ekki er að treysta á Samfylkinguna í Skagafirði þegar verndun Jökulsánna er annarsvegar og hug Framsóknar til íslenskrar náttúru þekkja allir. Aðeins er beðið færis að fórna þessum náttúruperlum Skagafjarðar eins og fram kemur í greinargerð með bókun meirihlutans. Undirritaður tekur undir ályktun SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi frá 27. febrúar sl., en þar segir: ?Stjórnarfundur SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, haldinn 27. febrúar 2008, styður tillögu til þingsályktunar um friðlýsingu Austari- og Vestari-Jökulsár í Skagafirði, 59. mál, sem lagt er fram á 135. löggjafarþingi 2007-2008. Austari- og Vestari Jökulsár í Skagafirði renna frá Hofsjökli. Þær hafa markað sér sérstöðu, sem eitt besta svæði til fljótasiglinga í Evrópu og þar hefur byggst upp umtalsverð atvinnustarfsemi þar sem afl jökulsánna og umhverfi er nýtt með sjálfbærum hætti. Stjórn SUNN telur eðlilegt að friða svæðið og stjórna því á þann hátt að landslag, náttúrufar og menningarminjar séu varðveitt, ásamt því að það verði notað til útivistar, ferðaþjónustu og hefðbundinna landbúnaðarnytja.?

Fundi slitið - kl. 14:27.