Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

920. fundur 24. júní 2020 kl. 14:45 - 15:53 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir varam.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Kristín Jónsdóttir. ritari
  • Helga Sigurrós Bergsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá

1.Umsókn um rekstur - sundlaugin á Sólgörðum

Málsnúmer 2006036Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi á milli Sótahnjúks ehf. og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um rekstur og viðhald sundlaugarinnar á Sólgörðum í Fljótum. Samningurinn gildir til 31. desember 2023.
Byggðarráð samþykkir framlögð drög með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

2.Viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2020-2024

Málsnúmer 2006197Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni númer fimm um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2020. Helstu breytingarnar eru gerðar vegna óvenju mikils snjómoksturs á árinu og er óskað eftir hækkun fjárheimilda um 29 mkr. vegna þess. Áætlað tekjutap á vormánuðum vegna Covid-19 í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla, sundlaugum og íþróttahúsum er 24.190 þús.kr. Aðrar breytingar í ýmsum málaflokkum nema samtals 2.010 þús.kr. Einnig er fjárfestingafé eignasjóðs aukið um 51,5 mkr. Lagt er til að mæta þessum útgjöldum með lántöku að fjárhæð 106.700 þús.kr.
Byggðarráð samþykkir að vísa viðaukanum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

3.Beiðni sveitarstjórnarráðherra vegna fasteignaskattsálagningar árið 2021

Málsnúmer 2006147Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til allra sveitarfélaga, dagsett 16. júní 2020 varðandi beiðni sveitarstjórnarráðherra vegna fasteignaskattsálagningar árið 2021.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar tekur jákvætt í aðgerðir til að halda aftur af hækkunum fasteignaskatts en telur frumforsendur þess að slíkt geti gengið eftir að breytingar verði gerðar á reglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga varðandi úthlutun framlags vegna fasteignaskatts þannig að sveitarfélögum verði ekki hegnt fyrir það að fullnýta ekki tekjustofna sína.

4.Umsókn um leyfi fyrir rallýkeppni

Málsnúmer 2006176Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. júní 2020 frá Bifreiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur, þar sem óskað er eftir leyfi til að halda rallýkeppni 25. júlí 2020 í Skagafirði. Erindinu fylgir leiðarlýsing.
Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt.

5.Ársfundur 2020 Stapi lífeyrissjóður

Málsnúmer 2006065Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 2. júní 2020 frá Stapa lífeyrissjóðí þar sem boðað er til ársfundar sjóðsins árið 2020. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 30. júní n.k. í Menningarghúsinu Hofi, Akureyri.
Byggðarráð samþykkir að Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á fundinum.

6.Brúsabyggð 1,3,5,7,12 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2006169Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 16. júní 2020 úr máli 2006169 hjá sýslumannsembætti Norðurlands vestra. Með umsókn dagsettri 10. júní 2020 sækir Gústaf Gústafsson, kt. 070173-5739, Rimasíðu 23e 603 Akureyri, f.h. Hjaltadalur ferðaþjónusta ehf, kt. 480520-0250, um leyfi til að reka gististað í flokki II 4 gestir í hverju húsi, að Brúsabyggð 1,3,5,7,12, 551 Sauðárkróki. Fastanr. F2222887, F2222896, F2222900, F2232585, F2142812.
Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leiti að uppfylltum öllum skilyrðum sem þarf til að fá rekstrarleyfi.

Fundi slitið - kl. 15:53.