Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

772. fundur 26. janúar 2017 kl. 09:00 - 12:20 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
  • Gunnsteinn Björnsson varam.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Ásta Björg Pálmadótttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Hugmyndir um uppbyggingu á ferðaþjónustu í Skagafirði

Málsnúmer 1701315Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið komu Árni Gunnarsson og Magnús Barðdal til fundar við byggðarráð og ræddu viðskiptahugmynd um uppbyggingu á ferðaþjónustu í Skagafirði með meginstarfsemi á Sauðárkróki.

2.Hugmyndir um menningarhús á Sauðárkróki

Málsnúmer 1701022Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 27. desember 2016 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu varðandi menningarhús á Sauðárkróki. Ráðuneytið hefur tilnefnt Karitas H. Gunnarsdóttur og Þráinn Sigurðsson sem fulltrúa sína í þarfagreiningarnefnd um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki. Jafnframt er óskað eftir að sveitarfélagið tilnefni einnig sína fulltrúa og tilkynni ráðuneytinu. Undir þessum dagskrárlið sat fundinn Sigfús Ingi Sigfússon verkefnastjóri.

Byggðarráð samþykkir að tilnefna Sólborgu Unu Pálsdóttur, Sigríði Magnúsdóttur, Gunnstein Björnsson, Björgu Baldursdóttur og Hönnu Þrúði Þórðardóttur.

3.Aðalgata 16B og Aðalgata 21A - 21B

Málsnúmer 1701317Vakta málsnúmer

Lagður fram makaskiptasamningur milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Kaupfélags Skagfirðinga vegna fasteignanna Aðalgötu 16b (Minjahúsið) og Aðalgötu 21-21a (Gamla samlagið að fyrrverandi Iðju meðtalinni og Grána).

Byggðarráð samþykkir makaskiptin.

4.Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar

Málsnúmer 1701316Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 var staðfest af umhverfisráðherra í maí 2012. Samkvæmt ákvæðum þágildandi skipulagslaga var heimilt, að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar og ráðherra, að fresta gerð skipulagsáætlana fyrir ákveðin svæði. Þau svæði eru auðkennd á uppdrætti og var frestun heimil í fjögur ár. Sá tími er nú liðinn og m.a. þess vegna þarf að hefja vinnu við breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Byggðarráð beinir því til sveitarstjórnar að hefja þurfi vinnu við breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021. Þörf er á að gera ákveðnar breytingar á aðalskipulaginu, s.s. fella út urðunarsvæði og vinna breytingar vegna legu Sauðárkrókslínu frá Varmahlíð til Sauðárkróks.

Einnig þarf að vinna að framlengingu á frestaðri landnotkun virkjunarkosta og taka inn í skipulagsvinnuna ákvörðun um legu byggðarlínunnar um Skagafjörð.

Byggðarráð samþykkir tillöguna með tveimur atkvæðum. Bjarni Jónsson (Vg) situr hjá við afgreiðsluna.

5.Upptaka og streymi á sveitarstjórnarfundum

Málsnúmer 1612105Vakta málsnúmer

Sveitarfélagið hefur verið með samning við verktaka um að taka upp sveitarstjórnarfundi og vista á Youtube. Sá samningur er útrunninn.

Byggðarráð samþykkir að endurnýja ekki samninginn og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að koma með tillögu um mögulegar lausnir.

6.Vegna mögulegra framkvæmda við gervigrasvöll á Sauðárkróki

Málsnúmer 1612176Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 12. desember 2016 frá aðalstjórn Umf. Tindastóls varðandi gervigrasvöll á Sauðárkróki.

Byggðarráð þakkar aðalstjórn Tindastóls fyrir erindið og vill í því ljósi koma eftirfarandi á framfæri:

Byggðarráð vill ítreka að markmið framkvæmdarinnar er, og hefur alltaf verið, að bæta vetraríþróttaaðstöðu á Sauðárkróki fyrir skóla og íþróttafélög, sem hefur verið lítil sem engin fram að þessu og kallað hefur verið eftir í áraraðir. Með sölu á húsnæði barnaskólans við Freyjugötu lokaði íþróttasalurinn þar og sú starfssemi sem í honum var fluttist í yfirfullt íþróttahús við Árskóla.

Með þeim framkvæmdum sem fyrirhugaðar eru, er hægt að færa út úr íþróttahúsinu greinar sem geta verið á hinum nýja gervigrasvelli og búið þannig til pláss í íþróttahúsinu sem ekki er mögulegt í dag fyrir aðrar greinar. Er það mat byggðarráðs að með nýjum gervigrasvelli á miðsvæðinu verði til mesta viðbótin við núverandi íþóttasvæði, en ljóst er að með því að setja gervigras á aðalvöllinn þarf að flytja kastsvæði fyrir frjálsar íþróttir af aðalvellinum. Er það skoðun byggðarráðs að aðalvöllurinn eigi áfram að vera keppnisvöllur allra þeirra íþróttagreina sem á honum eru stundaðar í dag, enda um að ræða einn glæsilegasta íþróttavöll landsins.

Í bréfi formanna frjálsíþróttadeildar og knattspyrnudeildar Tindastóls til byggðarráðs er sveitarfélagið hvatt til að halda áfram með verkefnið á þeim nótum sem þegar hefur verið kynnt og mikilvægi þess fyrir þessar deildir ítrekað en þetta eru aðalnotendur íþróttasvæðisins í dag. Einnig hefur byggðaráði borist erindi þar sem afstaða Árskóla er skýrð en þar fagna skólastjóri, verkefnastjórar vinaliðaverkefnisins og íþróttakennarar skólans framkvæmdinni og lýsa yfir mikilvægi þess fyrir skólann að völlurinn sé í eins mikilli nálægð við skólann og hægt er.

Að þessu sögðu er ljóst að þeir aðiliar sem munu verða aðalnotendur vallarins og íþróttasvæðisins í framtíðinni, fagna framkomnum hugmyndum um gervigrasvöll á miðsvæðið líkt og áætlanir sveitarfélagsins gera ráð fyrir.

7.Drög að leiðbeinandi reglum um sérstakan húsnæðisstuðning send til umsagnar

Málsnúmer 1611302Vakta málsnúmer

Félags- og tómstundanefnd vísaði til byggðarráðs frá 239. fundi sínum þann 24. janúar 2017, drögum að reglum sveitarfélagsins um sérstakan húsnæðisstuðning.

Byggðarráð samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum.

8.Orkusjóður - innviðir fyrir rafbíla

Málsnúmer 1609333Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Vistorku ehf., dagsettur 10. janúar 2017 þar sem tilkynnt er um afgreiðslu Orkusjóðs á umsókn félagsins um styrk fyrir hleðslustöðvum á Norðurlandi fyrir rafbíla. Sveitarfélagið Skagafjörður var aðili að umsókn Vistorku ehf. og verður ein hraðhleðslustöð staðsett í Varmahlíð og önnur á Sauðárkróki.

9.Rafbraut um Ísland

Málsnúmer 1701238Vakta málsnúmer

Orkusalan, dótturfyrirtæki RARIK, gefur öllum sveitarfélögum landsins hleðslustöð fyrir rafbíla, alls um 80 talsins. Með þessu vill fyrirtækið auðvelda rafbílaeigendum að komast leiðar sinnar hringinn í kringum landið. Orkusalan hefur afhent Sveitarfélaginu Skagafirði eina hleðslustöð sem verður staðsett á Sauðárkróki.

Byggðarráð þakkar Orkusölunni fyrir gjöfina og mun finna hleðslustöðinni góðan stað.

10.Klukka - erindi til sveitarfélagsins

Málsnúmer 1701274Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 11. janúar 2017 frá Rótarýklúbbi Sauðárkróks þar sem fram kemur að klúbburinn hefur fjárfest í nýrri og fullkomnari klukku til skipta út þeirri sem er nú til staðar á Flæðunum á Sauðárkróki. Klúbburinn vill gefa sveitarfélagsinu gömlu klukkuna gegn því að kosta uppsetningu á þeirri nýju.

Byggðarráð þakkar fyrir erindið og tekur jákvætt í það. Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga.

11.Laugavegur 15 n.h. 221-8387 - sala

Málsnúmer 1612218Vakta málsnúmer

Erindið áður á 771. fundi byggðarráðs þann 12. janúar 2017. Byggðarráð gerði Alex Má Sigurbjörnssyni og Bryndísi Rut Haraldsdóttur gagntilboð vegna sölu á fasteigninni Laugavegur 15, neðri hæð, Varmahlíð. Fastanúmer 221-8387. Hafa þau gengið að því.

12.Ferðasmiðjan ehf. - aðalfundur 2016

Málsnúmer 1609144Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Ferðsmiðjunnar ehf. fyrir árið 2015.

Fundi slitið - kl. 12:20.