Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

706. fundur 20. ágúst 2015 kl. 14:00 - 16:35 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Ásta Björg Pálmadótttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Innkaupareglur - tillaga um skipun starfshóps

Málsnúmer 1508109Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga frá Grétu Sjöfn Guðmundsdóttur, K-lista og Bjarna Jónssyni V-lista:

Skipun starfshóps til að vinna að drögum að innkaupareglum fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð.

Lagt er til að lokið verið við vinnu að drögum að innkaupareglum fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð, samkvæmt lögum um opinber innkaup nr. 84/2007 líkt og samþykkt var á fundi sveitarstjórnar 20. júní 2013. Lagt er til að skipaður verði nýr starfshópur til að vinna drög að reglum og honum verði sett tímamörk að skilum.

Greinargerð:
Árið 2013 var samþykkt á vettvangi Sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar að skipa starfshóp til að vinna að drögum að innkaupareglum og byggðaráð tilnefndi í starfshópinn 27. júní 2013. Sá starfshópur skilaði ekki því verki til sveitarstjórnar sem að var stefnt. Tilgangur laga um opinber innkaup er að tryggja jafnræði fyrirtækja við opinber innkaup, stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni og efla nýsköpun og þróun við innkaup hins opinbera á vörum, verkum og þjónustu. Mikilvægt er að Sveitarfélagið Skagafjörður skipi sér á lista þeirra sveitarfélaga sem sett hafa sér innkaupareglur.

Byggðarráð samþykkir að endurskipa í starfshópinn og fá einn fulltrúa frá hverju framboði í hann. Tilnefningar í starfshópinn verði teknar fyrir á næsta byggðarráðsfundi.

2.Umsókn um lækkun fasteignaskatts

Málsnúmer 1508079Vakta málsnúmer

Sjá trúnaðarbók.

3.Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts

Málsnúmer 1508041Vakta málsnúmer

Sjá trúnaðarbók.

4.Beiðni um fund v/skipulagsmála

Málsnúmer 1504083Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið sátu fundinn Þórólfur Gíslason, Pétur Stefánsson, Sigurjón Rúnar Rafnsson og Ólafur Sigmarsson fyrir hönd Kaupfélags Skagfirðinga, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Gunnar Guðmundsson svæðisstjóri og Guðmundur Heiðreksson. Til umræðu voru fyrirhugaðar framkvæmdir við verslunarhúsnæði Kaupfélags Skagfirðinga í Varmahlíð og staða mála gagnvart skipulagsmálum og legu þjóðvegar 1 um Skagafjörð.

5.Vegamál í Skagafirði

Málsnúmer 1508120Vakta málsnúmer

Undir þessum dagskrárlið sátu fundinn Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Gunnar Guðmundsson svæðisstjóri og Guðmundur Heiðreksson. Til umræðu voru vegamál í Skagafirði.

6.Rætur b.s. - málefni fatlaðra 2015

Málsnúmer 1501005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 18. fundar stjórnar Róta bs. þann 15. júní 2015.

7.Ráðgefandi hópur um aðgengismál - fundargerðir

Málsnúmer 1507116Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar ráðgefandi hóps um aðgengismál þann 13. ágúst 2015.

Fundi slitið - kl. 16:35.