Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar

42. fundur 09. mars 2017 kl. 08:30 - 09:45 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi
  • Einar Andri Gíslason starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Jón Örn Berndsen skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Ríp 2 (146396) - Umsókn um breytta notkun mannvirkis..

Málsnúmer 1608057Vakta málsnúmer

Tekin fyrir byggingarleyfisumsókn Birgis Þórðarsonar kt. 070660-5479, móttekin 11. nóvember 2016, eiganda jarðarinnar Ríp II ( 146396). Umsóknin er um leyfi til að breyta útliti og notkun hlöðu sem er matshluti 07 á jörðinni. Milligólf hefur verið sett í húsið, neðri hæð verður geymsla. Á efri hæð hefur verið innréttuð íbúð. Framlagðir uppdrættir gerðir af Guðmundi Þór Guðmundssyni kt. 200857-5269 byggingarfræðingi, dagsettir 09.06.2016 , breytt 02.12.2016 og 20.01.2017.

Á 294. fundi Skipulags- og byggingarnefndar Skagafjarðar, 18. nóvember 2016 var samþykkt breytt notkun mannvikris að uppfylktum skilyrðum um að tilskyldum hönnunargögnum væri skilað inn til byggingarfulltrúa. Byggingarleyfi nú veitt.



2.Egg (146368) - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 1702148Vakta málsnúmer

Tekin fyrir byggingarleyfisumsókn Emblu Dóru Björnsdóttur kt. 290486-2629 og Davíðs Loga Jónssonar kt. 300188-2819, eigendur jarðarinnar Egg í Hegranesi móttekin 6. mars 2017. Umsóknin er um leyfi til breyta hlöðu (matshluti 13) í legubásafjós og gera innanhússbreytingar á fjósi (matshluti 14). Framlagðir aðaluppdrættir áritaðir af Þóri Guðmundssyni kt. 040381-5389. Uppdrættirnir eru númer A-02, A-02 og A-03 dagsettir 08.02.2017. Byggingaráform samþykkt.

3.Iðutún 20 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 1703113Vakta málsnúmer

Tekin fyrir byggingarleyfisumsókn Hjartar Elefsen Óskarssonar kt. 300577-3779. Umsóknin er um leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni númer 20 við Iðutún á Sauðárkróki. Framlagðir aðaluppdrættir eru gerður á teiknistofunni Effort af Ólafi Tage Bjarnasyni kt. 150482-3489 byggingarfræðingi. Uppdrættirnir eru dagsettir 20 og 27. desember 2016, númer 100, 101, 102 og 103. Byggingaráform samþykkt.



Fundi slitið - kl. 09:45.