Fara í efni

Útboð - Vetrarþjónusta í Skagafirði

09.11.2023

Consensa fyrir hönd sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu í Skagafirði. Vetrarþjónusta samkvæmt skilmálum útboðsins samanstendur af snjóhreinsun gatna og göngustíga, snjóhreinsun plana og hálkuvarnir. Útboðinu er skipt í þrjá samningshluta og heimilt er að leggja fram tilboð í einstaka samningshluta útboðsins eða alla samningshluta.

Hægt er að sækja öll útboðsgögn án greiðslu á útboðsvefnum https://tendsign.is/.

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en kl. 12:00 þann 24. nóvember 2023.

Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is/utbod/auglyst-utbod.