Fara í efni

Ráðning forstöðumanns Iðju-hæfingar

31.07.2023
Guðrún Ösp Hallsdóttir

Guðrún Ösp Hallsdóttir þroskaþjálfi hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Iðju – hæfingar, þjónustu við fatlað fólk á Sauðárkróki. Guðrún Ösp tekur við starfinu af Jónínu G. Gunnarsdóttur iðjuþjálfa sem lét nýlega af störfum. Forstöðumaður starfar á fjölskyldusviði og kemur að skipulagi og samþættingu þjónustu við fatlað fólk á sameiginlegu þjónustusvæði á Norðurlandi vestra.

Guðrún Ösp hefur áralanga reynslu og þekkingu á störfum við fatlað fólk á heimilum sínum og í Iðju – hæfingu bæði í Skagafirði og í Reykjavík.

Um leið og við þökkum Jónínu G. Gunnarsdóttur fyrir hennar góðu störf til margra ára bjóðum við Guðrúnu Ösp Hallsdóttur hjartanlega velkomna til starfa og óskum henni velfarnaðar í sínum störfum.